Sveitarfélagið Hornafjörður
Sveitarfélagið Hornafjörður
Sveitarfélagið Hornafjörður

Deildarstjóri skipulags-, umhverfis- og byggingardeildar

Við leitum að framsýnum og metnaðarfullum leiðtoga til að ganga til liðs við teymið okkar.

Auglýst er eftir deildarstjóra skipulags-, umhverfis- og byggingardeildar, sem jafnframt gegnir hlutverki skipulagsfulltrúa. Þetta er lykilhlutverk fyrir þá sem vilja móta sjálfbæra og blómlega framtíð samfélagsins á einstökum stað. Ertu tilbúinn að takast á við krefjandi verkefni og leiða mikilvæga þróun?

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með öflugu teymi sem samanstendur af umhverfisfulltrúa, byggingarfulltrúa og verkefnastjóra umhverfis- og skipulagsmála.
  • Yfirumsjón með öllum skipulagsmálum sveitarfélagsins, þar á meðal gerð og breytingum á aðal- og deiliskipulagi.
  • Umsjón með umhverfismálum sveitarfélagsins.
  • Útgáfa og eftirlit með framkvæmdaleyfum.
  • Aðstoð við túlkun skipulagsskilmála.
  • Undirbúningur mála og seta funda umhverfis- og skipulagsnefndar.
  • Umsjón með landupplýsingum, kortagrunnum, lóðamálum og lóðaúthlutunum, ásamt utanumhaldi um allar landeignir sveitarfélagsins.
  • Gerð umsagna um laga- og reglugerðarbreytingar og skipulagsmál aðliggjandi sveitarfélaga sem varða starfsemi deildarinnar og hagsmuni sveitarfélagsins Hornafjarðar.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi er skilyrði, svo sem í skipulagsfræði, arkitektúr, byggingarfræði eða verkfræði.
  • Æskilegt er að þú hafir viðbótarmenntun sem nýtist í starfi, t.d. í opinberri stjórnsýslu og/eða verkefnastjórnun.
  • Umsækjandi þarf að uppfylla hæfisskilyrði 5. mgr. 7. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Ef það á við, þá skal umsækjandi leggja fram staðfestingu Skipulagsstofnunar um að hann uppfylli hæfisskilyrði.
  • Reynsla af störfum í opinberri stjórnsýslu og mannaforráðum er æskileg.
  • Við leitum að vandvirkum, nákvæmum og jákvæðum einstaklingi með mikinn drifkraft og frumkvæði.
  • Umsækjandi þarf að vera sveigjanlegur, lipur í samskiptum og búa yfir ríkri þjónustulund.
  • Hæfni til að vinna hratt og örugglega úr verkefnum er mikilvæg.
  • Mjög góð færni í íslensku, bæði rituðu máli og töluðu, er nauðsynleg.
  • Góð tölvukunnátta er nauðsynleg.
Auglýsing birt25. júní 2025
Umsóknarfrestur3. júlí 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hafnarbraut 27, 780 Höfn í Hornafirði
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar