N1
N1
N1

Gæðastjóri orkuinnviða – N1

Við leitum að kraftmiklum og metnaðarfullum stjórnanda til að leiða gæða- og orkumál félagsins ásamt því að hafa yfirumsjón með sjálfbærnimálum. Gæðastjóri orkuinnviða hefur það hlutverk að tryggja áreiðanleika, rekstraröryggi og samræmi í eldsneytissölu og raforkuþjónustu á þjónustustöðvum N1. Hafa yfirumsjón með gæðamálum, stöðlum og eftirliti í rekstri orkuinnviða með áherslu á þjónustu, umhverfisábyrgð og sjálfbærni.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Leiða öflugt og reynslumikið teymi á sviði orku- og gæðamála
  • Móta og innleiða stefnu í gæða- og öryggismálum
  • Hafa yfirumsjón með sjálfbærnistefnu N1 og tryggja innleiðingu hennar í daglegan rekstur
  • Fylgjast með eldsneytissölu, birgðastýringu og rekstri tanka og dælubúnaðar
  • Tryggja rekstraröryggi og þjónustugæði hleðslustöðva og tengdra innviða
  • Útbúa skýrslur og greiningar fyrir stjórnendur um stöðu gæðamála og frammistöðu orkuinnviða
  • Halda utan um samskipti við eftirlits- og samstarfsaðila

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af gæðastjórnun og/eða innleiðingu gæðakerfa er kostur
  • Reynsla af teymisstjórnun er kostur
  • Framsýni, skipulagshæfni og drifkraftur
  • Mjög góð samskiptahæfni og sjálfstæð vinnubrögð
  • Gott vald á íslensku og ensku, í ræðu og riti

Nánari upplýsingar

Jón Viðar Stefánsson – [email protected]

Þórdís Sif Arnarsdóttir – [email protected]

Umsóknarfrestur er tl og með 6.júlí 2025.

Auglýsing birt26. júní 2025
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Dalvegur 10-14, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)