Sveitarfélagið Hornafjörður
Sveitarfélagið Hornafjörður
Sveitarfélagið Hornafjörður

Sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs

Sveitarfélagið Hornafjörður leitar að framsæknum leiðtoga með skýra sýn sem er jafnframt drífandi og öflugur. Viðkomandi verður hluti af stjórnendateymi sem leiðir uppbyggingu samfélagsins í Hornafirði og metnaðarfulla þjónustu. Starfið heyrir undir bæjarstjóra Hornafjarðar.

Hlutverk sviðsins er að tryggja faglegt starf og fjárhagslega hagkvæman rekstur þeirra málaflokka og deilda sem undir sviðið heyra ásamt því að annast jákvæða og skilvirka þjónustu við bæjarbúa og aðra sem til sviðsins leita.
Sviðið skiptist í eftirfarandi þrjár deildir: skipulags-, umhverfis- og byggingadeild, þjónustu- og framkvæmdadeild og slökkvilið Hornafjarðar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Sviðsstjóri ber ábyrgð á umhverfis-, skipulags-, byggingareftirlits-, framkvæmda-, viðhalds- og veitumálum sveitarfélagsins ásamt hafnarmálum og starfsemi slökkviliðs.
  • Hann hefur yfirumsjón með leyfisveitingum, byggingar og framkvæmdaeftirliti, brunavörnum, hafnarmálum, skipulagsgerð, sorpmálum, náttúruvernd, landupplýsingum, lóðarúthlutunum, utanumhald um landeignir sveitarfélagsins, umsögnum um laga- og reglugerðarbreytingar í bygginga-, skipulags-, framkvæmda-, og öðrum málum sem tengjast starfsemi sviðsins.
  • Hann ber ábyrgð á áætlanagerð og undirbúning framkvæmda á vegum sveitarfélagsins, hefur umsjón með verklegum framkvæmdum og samskiptum við hlutaðeigandi og veitir sérfræðiráðgjöf við útboð framkvæmda og verksamninga á sviðinu.
  • Sviðstjóri er ábyrgur fyrir stefnumótun og daglegumv rekstri sviðsins þ.m.t. starfsmannamálum og fjármálum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, s.s. í verk-, tækni eða byggingafræði.
  • Meistarapróf á háskólastigi í byggingar- og/eða umhverfisverkfræði eða hliðstæðum greinum.
  • Kostur ef viðkomandi hefur viðbótarmenntun sem nýtist í starfi, s.s. í opinberri stjórnsýslu og/eða verkefnastjórnun og kann góð skil á lögum, reglum og stöðlum sem starfinu tilheyra.
  • Þekking og reynsla af málefnum er varða byggingar-, umhverfis- og skipulagsmál, opinber innkaup og stjórnun í opinberri stjórnsýslu er skilyrði.
  • Kostur ef viðkomandi hefur menntun og/eða reynslu sbr. 7. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, löggildingu sem hönnuður skv. 25. gr. mannvirkjalaga nr, 160/2010 og/eða uppfylli skilyrði skoðunarmanns skv. 21. gr. sömu laga.
  • Krafa um góða tölvukunnáttu (word, excel, Autocad, Qgis og One ásamt fl.) og góða færni í íslensku í ræðu og riti.
  • Krafa um góða þekkingu á áætlanagerð og undirbúningi framkvæmda.
  • Framúrskarandi leiðtogahæfni og hæfni til að nálgast mannauðsmál á markvissan og jákvæðan hátt.
  • Megináhersla er lögð á vandvirkni og nákvæmni í starfinu. Stöðuhafi þarf að sýna frumkvæði og drifkraft, sveigjanleika og lipurð i samskiptum. Enn fremur verður starfsmaður í þessari stöðu að búa yfir þjónustulund og hafa vilja til að vinna fljótt og örugglega úr þeim málum sem honum eru falin.
  • Bílpróf er skilyrði.
Auglýsing birt25. júní 2025
Umsóknarfrestur10. júlí 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hafnarbraut 27, 780 Höfn í Hornafirði
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar