Borgarbyggð
Borgarbyggð
Borgarbyggð

Deildarstjóri skipulags- og byggingarmál

Við leitum eftir framsæknum stjórnanda og sérfræðing til þess að taka þátt í að efla og leiða þjónustu sveitarfélagsins inn í nýja tíma. Borgarbyggð hefur einsett sér að leggja aukna áherslu á notendamiðaðri þjónustuhönnun, tækniframþróun og þjónustu við íbúa og viðskiptavini.

Í þeirri vegferð sem er framundan ætlum við að efla stjórnsýslu og þjónustu sveitarfélagsins og vera tilbúin til að mæta áskorunum framtíðarinnar. Áhersla verður lögð á þverfaglegt samstarf í verkefnamiðuðu umhverfi og frekari þróun innra starfs sem leiði í senn til framúrskarandi þjónustu og öflugs vinnuumhverfis.

Viðkomandi mun hafa yfirumsjón með skipulags- og byggingarmálum, umferðar- og samgöngumálum og ráðgjöf vegna stærri framkvæmdaverkefna. Stýrir verkefnum og vinnur að úrlausn þeirra ásamt því að sjá til þess að verkefnin séu unnin faglega í samræmi við lög og reglugerðir.

Viðkomandi mun heyra undir stjórnsýslu- og þjónustusvið Borgarbyggðar.

Menntunar- og hæfniskröfur
Menntun í arkitektúr, byggingarverkfræði, byggingartæknifræði eða sambærilegum tæknigreinum á háskólastigi. Framhaldsmenntun er kostur á þessu sviði auk menntunar er tengist verkefnastjórnun eða annarri stjórnun.
Stjórnunarhæfileikar og reynsla og þekking af stjórnun verkefna.
Skipulagsfærni til að hafa góða og örugga yfirsýn yfir mál deildarinnar.
Sýna skipulögð, fagleg og sjálfstæð vinnubrögð.
Frumkvæði í starfi.
Samskiptahæfni sem miðar að því að stýra hóp starfsmanna og teymisvinnu sem og góðri þjónustulund við þjónustuþega.
Þekking á skipulags- og mannvirkjalögum, byggingarreglugerð og gildandi stöðlum og samþykktum.
Reynsla og þekking af opinberri stjórnsýslu.
Góð almenn tölvukunnátta og talnagleggni.
Þekking og hæfni í íslensku, bæði töluðu sem rituðu máli.
Helstu verkefni og ábyrgð
Yfirmaður skipulags- og byggingarmála.
Vinnur með starfsfólki deildarinnar að daglegum verkefnum og er þeim til ráðgjafar og aðstoðar um málsmeðferð og framvindu einstakra mála.
Heildaryfirsýn yfir helstu verkefni deildarinnar og verkefnastjórnun.
Samstarf við sveitarstjóra og sviðsstjóra um uppbyggingu stjórnsýslu og þjónustu deildarinnar.
Hefur yfirumsjón umfangsmikilla skipulagsverkefna, stefnumótunar og áætlunargerðar í skipulagi og eftirfylgni.
Er starfsmaður og ritari skipulags- og byggingarnefndar.
Vinnur í teymum með gerð verkferla, verklagsreglna og gjaldskráa.
Ber ábyrgð á varðveislu skjala og gagna er tilheyra verkefnum og starfsviði sviðsins og skal starfa eftir þeim verklagsreglum og verkferlum sem sveitarfélagið setur sér.
Góð og skilvirk samskipti við íbúa, viðskiptavini og samstarfsaðila Borgarbyggðar.
Vinnur önnur þau verkefni sem yfirmaður felur honum.
Auglýsing birt1. júní 2022
Umsóknarfrestur20. júní 2022
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Borgarbraut 14, 310 Borgarnes
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Opinber stjórnsýslaPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar