Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Deildarstjóri – Hraunvallaleikskóli

Hraunvallaleikskólinn óskar eftir að ráða deildarstjóra í fullt starf.

Hraunvallaleikskóli er nú fjögurra deilda leikskóli staðsettur á Völlunum í Hafnarfirði þar sem stutt er í ósnortna náttúru. Frá og með haustinu verður hann sex deilda leikskóli. Leikskólinn vinnur eftir hugmyndafræði John Dewey og einkennist leikskólastarfið af fjölmenningu þar sem m.a. er virðing borin fyrir einstaklingnum, menningu og uppruna hans og allir hafa sama tækifæri til náms. Leikskólinn starfar eftir hugmyndafræði um snemmtæka íhlutun. Mjög gott samstarf er við Hraunvallaskóla en leikskólinn er í sama húsnæði og grunnskólinn. Gildi leikskólans eru vinátta, samvinna og ábyrgð sem endurspegla allt starf leikskólans.

Leitað er eftir áhugasömum og ábyrgum einstaklingi sem hefur metnað fyrir starfinu.

Ráðið verður í starfið eftir samkomulagi.

Menntunar- og hæfniskröfur
Starfsleyfi sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
Reynsla af starfi deildarstjóra í leikskóla er kostur/æskileg?
Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
Góð færni í samskiptum
Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Góð íslenskukunnátta
Helstu verkefni og ábyrgð
Vinnur að og ber ábyrgð á uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra
Ber ábyrgð á stjórnun, skipulagningu, framkvæmd og mati starfsins á deildinni
Annast daglega verkstjórn á deildinni og ber ábyrgð á miðlun upplýsinga
Ber ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá og að öll börn fái kennslu og umönnun við hæfi
Ber ábyrgð á allri foreldrasamvinnu
Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni.
Auglýsing birt9. maí 2022
Umsóknarfrestur20. maí 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Drekavellir 9, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar