Rauði krossinn á Íslandi
Rauði krossinn á Íslandi

Deildarstjóri höfuðborgardeildar Rauða krossins

Vilt þú leiða öflugt samfélagslegt starf sem hefur raunveruleg áhrif á líf fólks?
Rauði krossinn á Íslandi leitar að öflugum og lausnamiðuðum leiðtoga í starf deildarstjóra höfuðborgardeildar. Um er að ræða fjölbreytt og ábyrgðarmikið starf þar sem viðkomandi mun leiða mikilvæga þjónustu og samfélagsverkefni í nánu samstarfi við starfsfólk, sjálfboðaliða, stjórnvöld og samstarfsaðila.

Undir Hhöfuðborgardeild falla meðal annars skaðaminnkunarverkefnin Frú Ragnheiður og Ylja neyslurými, Aðstoð eftir afplánun, Fólk á flótta og önnur félags- og vinaverkefni. Þá heyrir starfsemi Kvennadeildar RKÍ einnig undir deildina.


Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Fagleg forysta, dagleg stjórnun og rekstur höfuðborgardeildar.
  • Ábyrgð á fjármálum, áætlanagerð, mannafla og gæðum þjónustu.
  • Stuðningur og samstarf við starfsfólk, teymisstjóra og sjálfboðaliða.
  • Þróun verkefna og umbótastarf í samræmi við stefnu félagsins og þarfir samfélagsins.
  • Samskipti, samningagerð og samstarf við stjórnvöld, sveitarfélög, stofnanir og aðra hagaðila.
  • Umsjón með upplýsingaflæði, fundarhaldi, ársskýrslu og samstarfi við stjórn deildarinnar.
  • Virk þátttaka í stefnumótun og þróun þjónustu innan félagsins.



Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, s.s. á sviði heilbrigðis- eða félagsvísinda eða verkefnastjórnunar.
  • Reynsla af stjórnun, rekstri og mannauðsmálum.
  • Leiðtogafærni, þjónustulund og góð yfirsýn.
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og lausnamiðuð nálgun.
  • Frumkvæði og góð skipulagshæfni.
  • Þekking á samfélagsmálum og neyðarvörnum og reynsla af samstarfi við ólíka hagaðila.
  • Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.



Umsóknarfrestur er til og með 7. júní 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og henni þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf. Nánari upplýsingar veitir Thelma Kristín Kvaran ([email protected]) í síma 511 1225. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál og verður þeim svarað að ráðningu lokinni. Allir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið.

Auglýsing birt20. maí 2026
Umsóknarfrestur7. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Efstaleiti 9, 103 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar