
Rekstrarstjóri við Háskólann á Hólum
Laust er til umsóknar fullt starf rekstrarstjóra við Háskólann á Hólum.
Rekstrarstjóri veitir sviði mannauðs, gæða og rekstrar og sviði rannsókna, nýsköpunar og kennslu forstöðu. Hann vinnur náið með rektor, öðrum stjórnendum og starfsfólki háskólans og er ætlað að leiða teymi og umbótastarf með gagnadrifinni nálgun. Rekstrarstjóri situr í framkvæmdaráði háskólans og heyrir starf hans undir rektor.
Fyrir Alþingi liggur frumvarp um breytingar á lögum um háskóla þar sem m.a. er fjallað um stofnun háskólasamstæðu Háskólans á Hólum og Háskóla Íslands. Rekstrarstjóri mun koma að þeirri vinnu og gegna mikilvægu hlutverki varðandi framtíð og þróun háskólastarfs við Háskólann á Hólum. Stofnun háskólasamstæðu er umfangsmikið breytingaverkefni sem felur í sér ýmsar áskoranir tengdar verkefnum rekstrarstjóra.
- Ábyrgð og eftirfylgni með daglegum rekstri, stjórnun og áætlanagerð á þeim sviðum sem undir hann heyra
- Ábyrgð á áætlanagerð og fjármálum skólans
- Ábyrgð á rekstri húsnæðis, innviðum og öryggis- og aðgengismálum
- Skýrslu- og samningagerð
- Greining og miðlun upplýsinga til stuðnings stefnumótandi ákvarðanatöku
- Seta í framkvæmdaráði háskólans og ýmsum nefndum og ráðum
- Samskipti og upplýsingamiðlun til nemenda, kennara, stjórnenda og starfsfólks skólans
- Samstarf og samskipti við ýmsa ytri hagaðila og aðra háskóla
- Háskólapróf sem nýtist í starfi, meistarapróf er æskilegt
- Reynsla af stjórnun
- Reynsla af rekstri og fjárhagsáætlanagerð
- Reynsla af gæða- og stefnumótunarstarfi er æskileg
- Reynsla af uppbyggingu teyma og breytingastjórnun er kostur
- Reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur
- Leiðtoga- og samskiptahæfni, frumkvæði og umbótamiðuð hugsun
- Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og á riti
- Góð tölvukunnátta, þar á meðal í Excel, reynsla af Power BI er æskileg
Íslenska
Enska

