
Dineout ehf.
Dineout ehf. er leiðandi hugbúnaðarhús með áherslur á lausnir fyrir veitingastaði, hótel og annan rekstur. Fyrirtækið var stofnað árið 2017 og hefur verið í miklum vexti síðan. Það samanstendur af þverfaglegu teymi forritara, verkfræðinga og sérfræðinga með mikla reynslu og þekkingu af daglegum rekstri veitingastaða.

Dineout ehf. leitar að drífandi og lausnamiðuðum deildarstjóra þjónustu
Um er að ræða lykilhlutverk í ört vaxandi hugbúnaðarfyrirtæki þar sem verkefnin felast meðal annars í að leiða framsýnt þjónustuteymi, innleiða nýja viðskiptavini og efla tengsl við núverandi viðskiptavini með framúrskarandi þjónustu.
Unnið er á skrifstofu fyrirtækisins við Katrínartún 2 í Reykjavík.
Dineout ehf. er leiðandi hugbúnaðarhús með áherslur á lausnir fyrir veitingastaði, hótel, þjónustufyrirtæki og annan rekstur. Fyrirtækið var stofnað árið 2017 og hefur verið í miklum vexti síðan. Það samanstendur af þverfaglegu teymi forritara, verkfræðinga og sérfræðinga með mikla reynslu og þekkingu af daglegum rekstri veitingastaða og þjónustuaðila.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Stýra og þróa þjónustuteymi Dineout með skýra framtíðarsýn og hvetjandi forystu
- Móta og innleiða þjónustustefnu sem styður við markmið fyrirtækisins
- Byggja upp og viðhalda sterkum tengslum við viðskiptavini
- Safna og greina gögn um þjónustu og ánægju viðskiptavina til stuðnings við ákvarðanatöku
- Leiða innleiðingu nýrra viðskiptavina og fylgja þeim eftir með markvissu eftirliti
- Þróa og halda utan um þjálfunaráætlanir fyrir þjónustuteymið
- Vinna þvert á svið með þróunarteymi, markaðs- og rekstrardeildum
- Sinna öðrum tilfallandi verkefnum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af leiðtogastarfi innan þjónustumiðaðs umhverfis
- Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu af stýringu í hugbúnaðargeiranum
- Reynslu af verkefnastjórnun er kostur
- Sterk samskiptahæfni og þjónustulund
- Háskólamenntun í viðskiptafræði eða sambærilegu sviði er kostur
- Góð tækni-, hugbúnaðar- og tölvukunnátta
- Leiðtogahæfni og geta til að byggja upp liðsheild
- Frumkvæði og lausnamiðuð hugsun
- Rík þjónustulund og lipurð í samskiptum
Auglýsing birt20. maí 2026
Umsóknarfrestur8. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Katrínartún 2, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Almenn tæknikunnáttaFljót/ur að læraHreint sakavottorðJákvæðniMannleg samskiptiÖkuréttindiReyklausÞjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (10)

Deildarstjóri höfuðborgardeildar Rauða krossins
Rauði krossinn á Íslandi

Vilt þú hafa áhrif á framtíð Hornafjarðar?
Sveitarfélagið Hornafjörður

Deildarstjóri hugbúnaðarlausna
Skatturinn

Sérfræðingur í reikningshaldi og uppgjöri
ALM Verðbréf hf.

Forstöðumaður íþrótta- og frístundamála
Hvalfjarðarsveit

Deildarstjóri á yngsta stigi - Engidalsskóli
Hafnarfjarðarbær

Sölufulltrúi í Blómval á Akureyri, hlutastarf
Blómaval

Deildarstjóri umsjónardeildar á Austursvæði
Vegagerðin

Senior Manager of Cyber, Infrastructure, and IT Support
atNorth

Deildarstjóri
Aldan