Menntasjóður námsmanna
Menntasjóður námsmanna

Deildarstjóri afgreiðsludeildar

Menntasjóður námsmanna óskar eftir að ráða metnaðarfullan leiðtoga með yfirgripsmikla þekkingu og brennandi áhuga á skjalamálum og rafrænni þjónustu. Um fullt starf er að ræða og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Starfssvið og ábyrgð

  • Stjórnun og ábyrgð á starfsemi deildarinnar
  • Ábyrgð á daglegri umsýslu og mótun verklagsreglna um móttöku og meðferð erinda
  • Umsjón með skjalavörslu sjóðsins og skilum gagna til Þjóðskjalasafns
  • Ráðgjöf og fræðsla til starfsmanna vegna rafrænnar stjórnsýslu og skjalavörslu
  • Ábyrgð á innri- og ytri vef MSNM
  • Umsjón með útsendingum og skönnun á uppgreiddum skuldabréfum
  • Ábyrgð á símsvörun og afgreiðslu


Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólapróf sem nýtist í starfi, s.s. á sviði bókasafns- og upplýsingafræði eða sambærilegt
  • Reynsla af skjalastjórnun er skilyrði og reynsla af notkun rafrænna skjalavistunarkerfa er kostur
  • Reynsla af stjórnun og eftirfylgni verkefna er kostur
  • Mjög góð tölvufærni
  • Framúrskarandi samskiptahæfni, jákvætt viðhorf og lausnarmiðuð hugsun
  • Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
  • Frumkvæði, sjálfstæð og öguð vinnubrögð


Umsóknarfrestur er til og með 23. maí 2022. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf (hvort tveggja á íslensku), þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra við Fræðagarð stéttarfélag. Athygli er vakin á því að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Upplýsingar veita Thelma Kristín Kvaran ([email protected]) og Hafdís Ósk Pétursdóttir ([email protected]) í síma 511 1225.

Auglýsing birt6. maí 2022
Umsóknarfrestur23. maí 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Borgartún 21, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.AfgreiðslaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Opinber stjórnsýslaPathCreated with Sketch.Samskipti í símaPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar