Háskólinn á Bifröst
Háskólinn á Bifröst
Háskólinn á Bifröst

Deildarforseti viðskiptadeildar

Deildarforseti hefur umsjón með námi og leiðir akademíska stefnumótun deildarinnar. Leitað er að einstaklingi með faglegan styrk, forystu í rannsóknum, reynslu af skólamálum á háskólastigi og metnað og áhuga á að taka virkan þátt í frekari uppbyggingu og þróun þessara þátta innan viðskiptafræði. Nemendafjöldi viðskiptadeildar er 530, þar af 262 í grunnnámi og 268 í meistaranámi.

Háskólinn á Bifröst er framsækinn háskóli sem hefur verið leiðandi í uppbyggingu hagnýts fjarnáms á háskólastigi hér á landi síðastliðin 20 ár.

Menntunar- og hæfniskröfur
Meistaragráða á fræðasviðinu.
Doktorspróf er kostur.
Þekking og reynsla af stjórnun og/eða kennslu á háskólastigi er mikilvæg.
Þekking og reynsla úr viðskiptalífinu er kostur.
Leiðtoga- og stjórnunarfærni.
Skipulags, samskipta- og samráðsfærni.
Mjög góð færni í íslensku og ensku, í ræðu og riti.
Helstu verkefni og ábyrgð
Deildarforseti situr í framkvæmdastjórn skólans og stjórn rannsóknasjóðs.
Skipuleggur kennslu og ræður stundakennara deildar.
Ber ábyrgð á starfs- og verkáætlunum fastra starfsmanna.
Hefur samstarf við kennslusvið, fjármálasvið og önnur stoðsvið skólans.
Hefur samskipti við nemendur um akademísk málefni.
Metur inntöku nemenda í viðskiptafræði með aðstoð kennslusviðs.
Tekur þátt í nefndarstarfi utan og innan skólans eftir atvikum.
Kemur að kennslu og rannsóknum samkvæmt samkomulagi við rektor.
Leiðir innra starf og þróunarstarf deildar.
Hefur eftirlit með rannsóknarvirkni í deildinni.
Heldur utan um gæðastarf deildar.
Auglýsing birt2. janúar 2021
Umsóknarfrestur31. janúar 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Bifröst skóli 134783, 311 Borgarnes
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Stefnumótun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar