KPMG á Íslandi
KPMG á Íslandi
KPMG á Íslandi

Bókhald - Vestmannaeyjar/Selfoss

KPMG er alþjóðlegt fyrirtæki sem leggur áherslu á að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustu á sviði endurskoðunar, reikningsskila, bókhalds, skattskila og viðskiptaráðgjafar. Hjá KPMG á Íslandi starfa um 320 sérfræðingar á 15 skrifstofum þar sem eru frábær tækifæri til starfsþróunar í sveigjanlegu og fjölbreyttu vinnuumhverfi.

Sérfræðingur í bókhaldi á Suðurlandi

Við leitum nú að öflugum einstaklingi með reynslu og þekkingu af bókhalds- og launavinnslu til starfa á skrifstofu okkar í Vestmannaeyjum eða á Selfossi.

Starfsfólk okkar þarf almennt að geta tekið frumkvæði og unnið sjálfstætt, vera lausnamiðað og njóta fjölbreytni í verkefnum, tileinka sér tækninýjungar, sem og að eiga auðvelt með samskipti við samstarfsfólk og viðskiptavini.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Bókhalds- og launavinnsla fyrir viðskiptavini KPMG.
  • Upplýsingagjöf og ráðgjöf til viðskiptavina.
  • Önnur tilfallandi verkefni.

Hæfniskröfur

  • Viðskiptamenntun æskileg og/eða nám til viðurkennds bókara.
  • Góð reynsla af bókhaldi er nauðsynleg, kostur ef viðkomandi hefur einnig reynslu af launavinnslu.
  • Reynsla af notkun Navision er kostur.
  • Enskukunnátta æskileg.
  • Frumkvæði, vandvirkni og öguð vinnubrögð.
  • Jákvæðni í samstarfi, lausnamiðað viðhorf og rík þjónustulund.

Í samræmi við markmið okkar í jafnréttismálum hvetjum við allt fólk til að sækja um óháð kyni.

Að vinna hjá KPMG

Okkar markmið er að vera eftirsóknarverður og framúrskarandi vinnustaður fyrir fjölbreyttan hóp af fólki. Við leggjum því mikla áherslu á að bjóða upp á heilbrigt og hvetjandi starfsumhverfi þar sem starfsfólk hefur tækifæri til að vaxa og dafna í starfi. Við náum árangri saman með því að hafa traust, sveigjanleika og góð samskipti að leiðarljósi á vinnustaðnum.

Nokkur dæmi um kosti þess að vinna hjá KPMG:

  • Fjölbreytt verkefni og tækifæri til að hafa jákvæð áhrif á viðskiptavini og samfélagið.
  • Frábær tækifæri til að læra af leiðandi sérfræðingum og þróast í starfi.
  • Aðgangur að heilsustyrk, samgöngustyrk og styrk fyrir tímum hjá sálfræðingi.
  • Sveigjanleiki til að vinna frá mismunandi skrifstofum og að heiman þegar við á.
  • Einn launaður dagur á ári til sjálfboðavinnu.
  • Og margt fleira.

Umsóknarfrestur er til og með 25. ágúst

Umsóknir ásamt ferilskrá og kynningarbréfi óskast fylltar út hér á heimasíðu KPMG (sækja um hér til hliðar). Nánari upplýsingar veitir Hildur Steinþórsdóttir, sérfræðingur í mannauðsmálum á [email protected]

Auglýsing birt6. ágúst 2024
Umsóknarfrestur25. ágúst 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Ægisgata 2, 900 Vestmannaeyjar
Austurvegur 4, 800 Selfoss
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar