Langisjór | Samstæða
Langisjór | Samstæða
Langisjór | Samstæða

Bókari með reynslu – Taktu þátt í vexti og þróun

Við leitum að ábyrgum og reynslumiklum bókara til að ganga til liðs við reikningshalds og uppgjörsteymið okkar. Teymið vinnur fyrir samstæðu Langasjávar.

Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni tengd daglegu bókhaldi, afstemmingum og skráningum innborgana.

Viðkomandi þarf að vera með reynslu af bókhaldi, ríka þjónustulund og góða skipulagshæfni.

Hvað er Langisjór?

Langisjór ehf. er móðurfélag nokkurra fyrirtækja í framleiðslu og dreifingu á matvælum ásamt útleigu og uppbyggingu atvinnu- og íbúðarhúsnæðis. Langisjór sér um mannauðsmál, tæknimál og fjármál fyrir öll dótturfélögin. Meðal fyrirtækja í samstæðu Langasjávar ehf. eru Alma íbúðafélag, Brimgarðar, Freyja, Mata, Matfugl, Salathúsið og Síld og fiskur. Hjá samstæðunni starfa um 420 manns.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Færsla og afstemmingar lánardrottnabókhalds
  • Afstemmingar á efnahagsliðum 
  • Umsjón með VSK skilum
  • Skrá innborganir frá viðskiptamönnum og aðstoð við innheimtu
  • Útbúa sölureikninga
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af bókhaldi skilyrði
  • Reynsla af Navision æskilegt
  • Góð færni í mannlegum samskiptum
  • Almenn tölvukunnátta kostur
  • Góð þjónustulund
Auglýsing birt21. ágúst 2025
Umsóknarfrestur7. september 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Sundagarðar 8, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.AfstemmingPathCreated with Sketch.Dynamics NAVPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.NavisionPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar