Wolt
Wolt
Wolt

Icelandic Speaking Support Associate

Vinnur þú vel með öðrum og ert með framúrskarandi samskiptahæfni? Finnst þér gaman að vinna í kraftmiklu umhverfi? Ef svarið er já - lestu nánar! 🤩

Við erum að leita að þjónustufulltrúa í hlutastarf (10 klst. á viku) til að ganga til liðs við þjónustuteymið okkar í Reykjavík! Við erum að leita að fólki á kvöld og helgar vaktir með möguleika á viðbótar dagvöktum virka daga.

Hvert er hlutverk þjónustufulltrúa?

  • Aðstoða viðskiptavini, sendla og veitingastaði í gegnum netspjall og síma
  • Tryggja að heimsendingarþjónustan gangi vel fyrir sig
  • Þróa þjónustustarfsemina okkar ásamt þjónustuteyminu og annara teyma innan Wolt

Auðmjúku væntingar okkar

  • Að þú sért með framúrskarandi samskiptahæfni með persónulegum blæ og leggur mikið upp úr þjónustulund og liðsheild
  • Aðlögunarhæfni, geta lært hratt og unnið með marga bolta á lofti í einu, og að þú sért klár til að vinna í hröðu starfsumhverfi
  • Að þú getir unnið breytilegar vaktir virka daga frá kl 17:00 og frá kl 11:30 um helgar. Þjónustuverið okkar er opið sjö daga vikunnar
  • Að þú talir reiprennandi íslensku og hafir góða færni í ensku
  • Þú þarft að geta unnið á skrifstofunni okkar sem er staðsett í Ármúla, Reykjavík
  • Við bjóðum ekki upp á möguleika á fjarvinnu

Fríðindin við að koma til liðs við okkur

  • Wolt inneign (cashback) af hverri Wolt pöntun
  • Stefna um velferð starfsmanna
  • Wolt starfsþróunarnámskeið
  • Starfsmannafélag með reglulegum uppákomum og skemmtunum
  • Ávextir og drykkir á skrifstofunni

Ef þér finnst spennandi að vinna í ört vaxandi umhverfi, taka ábyrgð og vera partur af gríðarlega metnaðarfullu teymi, smelltu þá hér að neðan til að sækja um og komdu boltanum af stað!

❗️Vinaleg ábending að notkun ChatGPT eða annarra gervigreindarverkfæra til þess að svara spurningum í umsóknarferlinu er ekki leyfilegt. Við viljum sjá þinn eigin persónuleika skína í gegn í svörum þínum 💙❗️

Auglýsing birt21. ágúst 2025
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Ármúli 13, 108 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar