
PwC
Hjá PwC á Íslandi starfa um 120 manns, flestir með menntun í viðskipta- og rekstrarfræðum og/eða löggiltir endurskoðendur. Við leggjum áherslu á að starfsfólk okkar fái tækifæri til að sérhæfa sig á sínu áhugasviði innan síns tiltekna fags.
Hjá PwC á alþjóðavísu starfa u.þ.b. 370.000 manns.

Bókari
PwC leitar að áhugasömum bókara til starfa í Reykjavík. Viðkomandi mun starfa við fjölbreytt bókhaldsverkefni fyrir stóran hóp viðskiptavina í ólíkum rekstri. Helstu verkefni eru færsla bókhalds, afstemmingar og útreikningur launa.
Við leitum að drífandi og lausnamiðuðum samstarfsfélaga með áhuga á bókhaldi og fyrirtækjarekstri. Unnið er í teymi með öðrum bókurum og á mismunandi bókhaldskerfi, þar á meðal DK og NAV Business Central.
Við bjóðum upp á sveigjanleika og tækifæri til að vaxa í starfi. Lögð er áhersla á fagleg vinnubrögð, miðlun þekkingar og starfsþjálfun allra í teyminu, en virk fræðslustefna er hjá PwC með reglulegum námskeiðum bæði innanhús sem og hjá samstarfsfélögum.
Menntunar- og hæfniskröfur
Almenn þekking og skilningur á bókhaldi, fyrri reynsla á bókhaldsstofu er kostur
Reynsla af notkun DK eða Business Central viðskiptahugbúnaðar er kostur
Sýnd færni til að tileinka sér nýjar stafrænar lausnir
Metnaður til að ná árangri í starfi
Góð geta til að vinna í hóp
Samviskusemi og nákvæmni í vinnubrögðum
Sjálfstæði, frumkvæði og sterk samskiptahæfni
Helstu verkefni og ábyrgð
Færsla bókhalds
Afstemmingar
Virðisaukaskattskil
Launaútreikningur
Skil á opinberum gjöldum
Samskipti og ráðgjöf við viðskiptavini
Auglýsing birt5. ágúst 2022
Umsóknarfrestur15. ágúst 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Skógarhlíð 12, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
AfstemmingDKFrumkvæðiLaunavinnslaMetnaðurSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Launaráðgjafi í Mannauðslausnum
Advania

Launafulltrúi
Hrafnista

Þjónustufulltrúi
Gæðabakstur

Innkaup og þjónusta
Rubix Ísland ehf

Fulltrúi í þjónustu við netverslanir
TVG-Zimsen

Þjónustufulltrúi
Atlantsolía

Verkefnastjóri
KÓRÍS, Kórasamband Íslands

Sérfræðingur á Greiðslustofu atvinnuleysistrygginga á Skagaströnd
Vinnumálastofnun

Sérfæðingur í bókhaldsdeild
Eir, Skjól og Hamrar hjúkrunarheimili

Bókari
Eðalfang ehf.

Payroll Specialist
Alvotech hf

Móttöku- og skrifstofustarf
Hagvangur