
Klettur - sala og þjónusta ehf
Saga Kletts og forvera félagsins nær aftur til 1947 og er því óhætt að segja að félagið byggi á traustum grunni sérhæfðrar þekkingar og reynslu. Árið 2010 markaði nýtt upphaf en þá hófst starfsemi Kletts sem tók yfir allan rekstur vélasviðs Heklu. Allar götur síðan hefur Klettur verið leiðandi í sölu og þjónustu sem nær yfir breiða línu vinnuvéla, aflvéla, rafstöðva, lyftara, hjólbarða, vöruflutninga- og hópferðabíla ásamt hleðslukrönum og ábyggingum. Klettur býður einnig upp á ýmsan hliðarbúnað og fylgihluti frá þekktum vörumerkjum.
Helstu vörumerki félagsins eru Caterpillar vinnuvélar, aflvélar, rafstöðvar og lyftarar, Perkins aflvélar og rafstöðvar, Scania vöruflutninga- og hópferðabifreiðar, Scania aflvélar og rafstöðvar, Goodyear, Hankook, Nexen og Maxam hjólbarðar, Ingersoll Rand loftpressur, Mitsubishi gufuaflstúrbínur, Merlo skotbómulyftarar, ZF bátagírar, Hiab hleðslukaranar og gámakrókar, Ausa vinnuvélar, Multione liðléttingar, Trime ljósamöstur, Langendorf vagnar og pallar og Larue snjóblásarar. Félagið hefur starfað í marga áratugi með helstu birgjum sínum og er meðal elstu umboðsaðila þeirra vörumerkja í Evrópu.
Félagið og starfsmenn leggja metnað sinn í að vera leiðandi í sölu og þjónustu á þeim mörkuðum sem félagið vinnur á og að þær vörur og þjónusta sem boðið er uppá hjálpi viðskiptavinum Kletts að ná sem bestum árangri.
Klettur er hluti af Styrkás

Bifvélavirki / Vélvirki Akureyri
Við leitum að öflugum vinnufélaga í bilgreiningar og viðgerðir á vörubílum,vinnuvélum, lyfturum, hópferðabílum og tengdum búnaði.
Leitað er að aðila til að ganga til liðs við öflugt teymi starfsmanna á nýju verkstæði okkar á Akureyri að Goðanesi 2. Verkefnin eru fjölbreytt og spennandi í fyrirmyndaraðstöðu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Bilanagreiningar á rafbúnaði, vélum, gírkössum, drifum, undirvagni og öðrum íhlutum.
- Almenn viðhaldsvinna, s.s viðgerðir á vélum, gírkössum, drifum, undirvagni, rafmagnsbúnaði og öðrum íhlutum
- Vinna eftir gæðakerfi Kletts og fylgja handbókum, stöðlum og fyrirmælum framleiðanda
- Sækja námskeið á vegum Kletts og annarra kennslustofnana
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Fullgild réttindi sem bifvélavirki eað vélviki og eða haldbær reynsla af viðgerðum bíla/tækja.
- Fagmennska og vinnusemi
- Kunnátta til að fara með bilanagreinra, sérverkfæri og önnur tengd verkfæri
- Góð íslenksu- og/eða enskukunnátta
- Nákvæmni, stundvísi og góð samstarfs- og samskiptahæfni
Fríðindi í starfi
- Íþróttastyrkur og niðurgeiddur hádegisverður
- Sterkt of virkt starfsmannafélag
- Afsláttur af vörum og þjónustu fyrirtækisins
Auglýsing birt19. ágúst 2026
Umsóknarfrestur9. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Goðanes 2, 603 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
BifvélavirkjunBilanagreiningBílarafmagnsviðgerðirBílvélaviðgerðirVélvirkjun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (7)

Vélvirki/Bifvélavirki á lyftaraverkstæði
Klettur - sala og þjónusta ehf

Akureyri - starfsmaður smurstöð
Klettur - sala og þjónusta ehf

Klettur - Viðgerðarmaður í loftlausnum
Klettur - sala og þjónusta ehf

CAT - Vélvirki á vélaverkstæði
Klettur - sala og þjónusta ehf

Bifvélavirki á vörubílaverkstæði Reykjavík
Klettur - sala og þjónusta ehf

Bifvélavirki á vörubílaverkstæði Hafnarfirði
Klettur - sala og þjónusta ehf

Sölufulltrúi í varahlutaverslun
Klettur - sala og þjónusta ehf
Sambærileg störf (12)

Frískt framtíðarfólk óskast hjá Vélrás - Viðgerðir
Vélrás

Vélvirki/Bifvélavirki á lyftaraverkstæði
Klettur - sala og þjónusta ehf

CAT - Vélvirki á vélaverkstæði
Klettur - sala og þjónusta ehf

Vélvirki
Nói Síríus

Stöðvarstjóri á Ísafirði
Frumherji hf

Bifvélavirki á vörubílaverkstæði Reykjavík
Klettur - sala og þjónusta ehf

Bifvélavirki á vörubílaverkstæði Hafnarfirði
Klettur - sala og þjónusta ehf

Bifvélavirki, vélvirki
Bílaverkstæði Hjalta ehf

Vélstjóri í vélasal hjá Fjallalambi í september og október.
Fjallalamb.hf

Starfsmaður á verkstæði
Malbikstöðin

Bifvélavirkjar - Askja Reykjanesbæ
Bílaumboðið Askja

Starfsmaður á vélaverkstæði Reyðarfirði
Vegagerðin