Vélrás
Vélrás
Vélrás

Frískt framtíðarfólk óskast hjá Vélrás - Viðgerðir

Frískt framtíðarfólk óskast hjá Vélrás

Ertu í námi í bíla- eða véliðngrein, eða einfaldlega áhugasamur um bíla, tæki og viðgerðir og langar að læra meira?

Vélrás leitar að áhugasömu framtíðarfólki sem vill stíga sín fyrstu skref í fjölbreyttu og lifandi verkstæðisumhverfi.

Hjá Vélrás er unnið við fjölbreytt verkefni og viðgerðir á meðal annars fólksbílum, atvinnubílum, rútum, eftirvögnum og ýmsum tækjum og búnaði. Hér gefst því gott tækifæri til að öðlast reynslu, læra af reynslumiklu fagfólki og kynnast mörgum hliðum viðgerðarstarfa.

Við hvetjum sérstaklega nema í bifvélavirkjun, vélvirkjun og öðrum tengdum iðngreinum til að sækja um. Einnig kemur vel til greina áhugasamt fólk sem vill kynna sér fagið og hefur metnað til að læra.

Við leitum að fólki sem:

  • Hefur áhuga á bílum, vélum og tæknilegum verkefnum
  • Er jákvætt, duglegt og tilbúið að læra
  • Vill öðlast reynslu og þróast í starfi
  • Getur unnið sjálfstætt en kann jafnframt að vinna með öðrum
  • Hefur áhuga á framtíð innan bíla- eða véliðnaðarins

Við bjóðum:

  • Fjölbreytt og krefjandi verkefni
  • Tækifæri til að læra af reynslumiklu fagfólki
  • Góða aðstöðu og öflugt starfsumhverfi
  • Sveigjanlegan vinnutíma sem getur hentað vel með námi
  • Möguleika á áframhaldandi starfi og starfsþróun hjá Vélrás

Hvort sem þú ert þegar kominn af stað í námi eða ert einfaldlega að velta fyrir þér hvort bíla- og véliðnaðurinn sé eitthvað fyrir þig, þá viljum við gjarnan heyra frá þér.

Komdu og öðlastu reynslu með okkur.

Auglýsing birt19. ágúst 2026
Umsóknarfrestur15. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Álhella 4, 221 Hafnarfjörður
Klettagarðar 12, 104 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar