
Klettur - sala og þjónusta ehf
Saga Kletts og forvera félagsins nær aftur til 1947 og er því óhætt að segja að félagið byggi á traustum grunni sérhæfðrar þekkingar og reynslu. Árið 2010 markaði nýtt upphaf en þá hófst starfsemi Kletts sem tók yfir allan rekstur vélasviðs Heklu. Allar götur síðan hefur Klettur verið leiðandi í sölu og þjónustu sem nær yfir breiða línu vinnuvéla, aflvéla, rafstöðva, lyftara, hjólbarða, vöruflutninga- og hópferðabíla ásamt hleðslukrönum og ábyggingum. Klettur býður einnig upp á ýmsan hliðarbúnað og fylgihluti frá þekktum vörumerkjum.
Helstu vörumerki félagsins eru Caterpillar vinnuvélar, aflvélar, rafstöðvar og lyftarar, Perkins aflvélar og rafstöðvar, Scania vöruflutninga- og hópferðabifreiðar, Scania aflvélar og rafstöðvar, Goodyear, Hankook, Nexen og Maxam hjólbarðar, Ingersoll Rand loftpressur, Mitsubishi gufuaflstúrbínur, Merlo skotbómulyftarar, ZF bátagírar, Hiab hleðslukaranar og gámakrókar, Ausa vinnuvélar, Multione liðléttingar, Trime ljósamöstur, Langendorf vagnar og pallar og Larue snjóblásarar. Félagið hefur starfað í marga áratugi með helstu birgjum sínum og er meðal elstu umboðsaðila þeirra vörumerkja í Evrópu.
Félagið og starfsmenn leggja metnað sinn í að vera leiðandi í sölu og þjónustu á þeim mörkuðum sem félagið vinnur á og að þær vörur og þjónusta sem boðið er uppá hjálpi viðskiptavinum Kletts að ná sem bestum árangri.
Klettur er hluti af Styrkás

Vélvirki/Bifvélavirki á lyftaraverkstæði
Við leitum að öflugum vinnufélaga til að ganga til liðs við öflugt teymi vélvirkja á verkstæði okkar á Einhellu 1, Hafnarfirði. Verkefnin eru fjölbreytt og spennandi í fyrirmyndaraðstöðu. Við leitum að aðila sem getur unnið sjálfstætt. Starfið felur í sér vinnu inn á verkstæði sem og á starfsstöðvum viðskiptavina við CAT-lyftara og Merlo-skotbómulyftara
Helstu verkefni og ábyrgð
- Bilagreining á vélum, rafkerfum, vökvakerfum, drifum, undirvagni og öðrum íhlutum
- Almenn viðhaldsvinna, s.s. viðgerðir á vélum, gírkössum, skiptingum, vökvakerfum, drifum, undirvagni, rafmagnsbúnaði og öðrum íhlutum
- Vinna eftir gæðakerfi Kletts og fylgja handbókum, stöðlum og fyrirmælum framleiðanda
- Framfylgja öryggis- og brunareglugerðum
- Sækja námskeið á vegum Kletts og annarra kennslustofnana
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Réttindi sem vélvirki eða bifvélavirki kostur
- Kunnátta til að fara með bilanagreinar, sérverkfæri og önnur tengd verkfæri er kostur
- Góð íslensku- og/eða enskukunnátta
- Nákvæmni, stundvísi og góð samstarfs- og samskiptahæfni
Fríðindi í starfi
- Niðurgreiddur matur
- Sterkt og virkt starfsmannafélag
- Íþróttastyrkur
- Afsláttur af vörum og þjónustu fyrirtækisins
Auglýsing birt19. ágúst 2026
Umsóknarfrestur30. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Einhella 1, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
NákvæmniSjálfstæð vinnubrögðStundvísi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Rekstrarstjóri Tækjaverkstæðis - Keflavíkurflugvöllur
Icelandair

Sölumaður varahluta
Hagvangur

Öflugt viðgerðarfólk á verkstæði Vélafls
Vélafl ehf

Laghentur viðgerðarmaður
Stjörnugrís hf.

Vélvirki, vélstjóri
Stálorka

Tæknimaður óskast til starfa hjá Freyju
Freyja

Hefur þú reynslu af vinnuvélum og tækjum og vilt vinna á skemmtilegum vinnustað
Vinnueftirlitið

Stöðvarstjóri á Selfossi
Frumherji hf

Vélvirki eða vélstjóri á Suðurnesjum
HS Veitur hf

Pípulagningarmaður á Suðurnesjum
HS Veitur hf

Skoðunarmaður óskast !
Tékkland bifreiðaskoðun

Vélvirki
Nói Síríus