Klettur -  sala og þjónusta ehf
Klettur - sala og þjónusta ehf
Klettur -  sala og þjónusta ehf

Bifvélavirki á vörubílaverkstæði Reykjavík

Við leitum að öflugum vinnufélaga í bilanagreiningar og viðgerðir á vörubílum og hópferðabílum ásamt tengdum búnaði þeirra.


Leitað er að aðila til að ganga til liðs við öflugt teymi bifvélavirkja á vörubílaverkstæði okkar í Klettagörðum í Reykjavík. Verkefnin eru fjölbreytt og spennandi í fyrirmyndaraðstöðu.
Um er að ræða fullt starf þar sem vinnutíminn er 8:00-17:00 en þriðju hverja viku frá 15:00-23:30 með fríi á föstudögum á þeim vikum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Almenn viðhaldsvinna s.s. viðgerðir á vélum, gírkassa, drifum, undirvagni, rafmagnsbúnaði og öðrum íhlutum.
  • Bilanagreiningar á búnaði s.s. vélum, gírkössum, drifum, undirvagni, rafmagnsbúnaði og öðrum íhlutum.
  • Standsetning nýrra vörubíla og hópferðabíla ásamt ásetningu á ýmsum aukabúnaði.
  • Bilanagreiningar og viðgerðir á tengdum búnaði vörubíla s.s. krókheysum, ruslabúnaði, krönum og öðrum ábyggingum.
  • Vinna eftir gæðakerfi Kletts og fylgja handbókum, stöðlum og fyrirmælum framleiðanda.
  • Sækja námskeið á vegum Kletts og annarra kennslustofnana.
  • Önnur tilfallandi verkefni. 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Fullgild réttindi sem bifvélavirki eða vélvirkjun kostur.
  • Sjálfstæð vinnubrögð, góð samstarfs- og samskiptahæfni
  • Kunnátta til að fara með bilanagreinar, sérverkfæri og önnur tengd verkfæri.
  • Góð íslensku- og/eða enskukunnátta 
Fríðindi í starfi
  • Íþróttastyrkur & niðurgreiddur hádegisverður
  • Öflugt starfsmannafélag sem býður upp á hina ýmsu viðburði
  • Afsláttur af vörum og þjónustu fyrirtækisins 
Auglýsing birt19. ágúst 2026
Umsóknarfrestur9. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Klettagarðar 8-10 8R, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.BifvélavirkjunPathCreated with Sketch.Meistarapróf í iðngreinPathCreated with Sketch.Vélvirkjun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar