Stefna hugbúnaðarhús
Stefna hugbúnaðarhús
Stefna hugbúnaðarhús

Bakendaforritari

Stefna hugbúnaðarhús leitar að öflugum senior level bakendaforritara til að slást í hóp öflugs teymi forritara. Í boði er áhugavert og fjölbreytt starf á sviði hugbúnaðarþróunar. Leitum að liðsmanni sem er lausnamiðaður, góður liðsmaður, með ríka þjónustulund og fljótur að tileinka sér nýja hluti. Starfsstöð getur verið hvort sem er á Akureyri eða í Kópavogi.

Stefna hugbúnaðarhús sérhæfir sig í stafrænan lausnum fyrirtækja, opinberra stofnana, sveitarfélaga og félagasamtaka.

Hjá Stefnu starfar teymi sérfræðinga í öllu sem viðkemur hugbúnaðargerð; greining, hönnun, vefun og forritun. Við erum sveigjanleg og útsjónarsöm, setjum okkur vel inn í þarfir viðskiptavina, finnum lausn sem hentar hverju sinni og höfum það að markmiði að uppfylla þarfir þeirra sem gera kröfur.

Viðskiptavinir Stefnu skipta hundruðum og er þar á meðal að finna nokkur af stærstu fyrirtækjum og stofnunum landsins.

Stefna er með skrifstofur bæði á Akureyri og í Kópavogi, og þar vinnur samhentur hópur sérfræðinga sem hefur áhuga á öllu sem kemur að hugbúnaði. Við viljum að okkar fólki líði vel í vinnunni og því skiptir það okkur máli að skapa faglegt og traust starfsumhverfi.

Menntunar- og hæfniskröfur
Þekking og reynsla nauðsynleg á SQL og Object Oriented forritunarmáli
Þekking og reynsla æskileg í GIT, PHP, MySQL, ServerLess, AWS, lambda, phpstan, bitbucket pipelines,TypeScript, pulumi, linux, docker, OpenAPI, bash, puppet
3+ ára starfsreynsla
Háskólamenntun á sviði tölvunarfræði eða hugbúnaðarverkfræði æskileg
Auglýsing birt4. mars 2022
Umsóknarfrestur18. mars 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Glerárgata 34, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.AWSPathCreated with Sketch.DockerPathCreated with Sketch.LinuxPathCreated with Sketch.PHPPathCreated with Sketch.SQLPathCreated with Sketch.TypeScript
Starfsgreinar
Starfsmerkingar