Leikskólinn Reykjakot
Leikskólinn Reykjakot
Leikskólinn Reykjakot

Almenn umsókn

Í ná­lægð við nátt­úr­una

Nám þar sem lögð er áhersla á sköp­un, hæfni, virkni og frum­kvæði. Þann­ig vilj­um við í Reykja­koti starfa. Stað­setn­ing skól­ans hef­ur mót­andi áhrif. Hann er í ná­lægð við nátt­úr­una. Skóg­ur, Varmá, fellin. Við í Reykja­koti nýt­um úti­veru og sér­stak­lega græn svæði til að hafa já­kvæð áhrif á heilsu okk­ar og líð­an. Við vilj­um kynn­ast nátt­úr­unni bet­ur, vinna verk­efni út í nátt­úr­unni, safna nátt­úru­leg­um efni­við til list­sköp­un­ar. Fræð­ast um hveru mik­il­væg nátt­úr­ann er, hversu gef­andi hún er. Börn­in læra að um­gang­ast nátt­úr­una, bera virð­ingu og einn­ig að leita inn­blásturs til list­sköp­un­ar úr og í nátt­úr­unni.

Mos­fells­bær er heilsu­efl­andi sam­fé­lag. Meg­in­mark­mið­ið er að skapa um­hverfi og að­stæð­ur sem stuðla að heilsu­sam­leg­um lifn­að­ar­hátt­um, heilsu og vellíð­an allra. Í því felst að skapa skólaum­hverfi sem stuðl­ar að and­legri, lík­am­legri og fé­lags­legri heilsu og vellíð­an barna og starfs­fólks. Hreyf­ing­in sem felst í að vera í nátt­úr­unni sem og list­sköp­un­in sjálf hef­ur já­kvæð áhrif á lík­am­lega og ekki síð­ur and­lega líð­an barna og starfs­fólks.

Helstu verkefni og ábyrgð
Reykja­kot legg­ur áherslu á sjálfsprott­inn leik barn­anna og ger­ir hon­um hátt und­ir höfði. Leik­ur­inn er náms­leið ungra barna og þar af leið­andi meg­in­náms­leið leik­skól­ans.Leik­ur kall­ar á fjöl­breytta notk­un tungu­máls, hreyf­ingu, fé­lags­leg sam­skipti og til­finn­inga­tengsl.
Úti­vera er mik­il­væg­ur þátt­ur í þroska hvers barns og nýt­ur leik­skól­inn góðs af stór­kost­legri og ósnort­inni nátt­úru Mos­fells­bæj­ar sem er nýtt mik­ið í starfi utan leik­skóla­lóð­ar­inn­ar.
Fríðindi í starfi
Stytting vinnuvikunnar
Samgöngustyrkur
Auglýsing birt6. maí 2024
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Krókabyggð 2, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar