Akademísk staða í raforkuverkfræði
Háskólinn í Reykjavík óskar eftir að ráða í akademíska stöðu við verkfræðideild. Ráðið er í stöðu lektors, dósents eða prófessors og verður starfsheiti ákvarðað út frá formlegu hæfnismati. Deildin hvetur konur sérstaklega til að sækja um stöðuna.
-
Viðkomandi mun kenna um það bil þrjú námskeið á ári.
-
Gert er ráð fyrir að viðkomandi geti þróað námskeið á grunn- og meistaranámsstigi á sviði raforku og raforkukerfa.
-
Að þróa og afla fjármögnunar fyrir rannsóknarverkefni og að leiðbeina framhaldsnemum og nýdoktorum.
-
Gert er ráð fyrir að viðkomandi taki þátt í stjórnunarstörfum svo og öðrum tilfallandi verkefnum bæði innan deildarinnar og háskólans.
-
Gert er ráð fyrir að viðkomandi taki virkan þátt í uppbyggingu og utanumhaldi á samstarfi við atvinnulífið.
-
Doktorspróf í rafmagnsverkfræði eða skyldu sviði.
-
Haldbær reynsla af sjálfstæðum rannsóknum er tengjast raforkuverkfræði.
-
Reynsla af kennslu, skipulagi og uppsetningu námskeiða er kostur.
-
Starfsreynsla tengd raforkuverkfræði er kostur.
-
Færni í mannlegum samskiptum og hæfni til að vinna með fjölbreyttum teymum á ólíkum sviðum
-
Þess er krafist að viðkomandi hafi fullt vald á ensku.