

Aðstoðarmaður, NPA, óskast í tímabundið ca. 33% hlutastarf
Óska eftir að ráða tímabundið í afleysingar, aðstoðarmann í ca. 30% hlutastarf.
Starfið er laust strax, getur verið mjög sveigjanlegt og hentar kannski með öðru starfi eða námi. Um er að ræða notendastýrða persónulega aðstoð (NPA) hjá manni, sem notar handknúinn hjólastól, en ég er búsettur í Mosfellsbæ. Aðstoð við ýmis verkefni og erindi heima við og að heiman.
Handlagni og verkvit er mikilsmetin hæfni. Vinnutími getur verið bæði virka daga og um helgar skv. nánara samkomulagi.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi NPA miðstöðvarinnar (www.npa.is) og Eflingar stéttarfélags.
Umsækjandi þarf að vera 18 ára eða eldri, líkamlega hraustur og reyklaus.
· Stundvísi og áreiðanleiki.
· Jákvæðni og sveigjanleiki.
· Vandvirkni og eiga auðvelt með að taka leiðsögn.
· Ökuréttindi og akstursreynsla eru nauðsynleg.
· Handlagni og verkvit.
· Tungumál: Íslenska og/eða enska.
· Menntun: Iðn- eða háskólamenntun sem er í gangi eða lokið er kostur.
· Ekki er gerð krafa um reynslu af NPA starfi eða svipuðum þjónustustörfum við fatlað fólk.
Enska
Íslenska



















