NPA miðstöðin
NPA miðstöðin
NPA miðstöðin

Óska eftir hressu og skemmtilegu NPA aðstoðarfólki

Ég er 53 ára gömul kona, búsett í Grafarvogi, og leita að hressu, skemmtilegu og áreiðanlegu aðstoðarfólki, 20 ára eða eldri, til þess að aðstoða mig í mínu daglega lífi. Mig langar að fá til liðs við mig einstaklinga sem eru jákvæðir, með húmorinn í lagi og hafa góða nærveru. Ég er mikill dýravinur og mun líklega fá mér hund einn daginn, svo það er kostur ef þú hefur líka gaman af dýrum.

Starfið felur í sér að aðstoða mig við flestar athafnir daglegs lífs, svo sem persónulegt hreinlæti, heimilisþrif, aðstoð við eldamennsku, aðstoð við að sinna áhugamálum mínum og ýmislegt annað sem kemur upp í daglegu lífi. Engir tveir dagar eru endilega eins og því hentar starfið vel fyrir einstakling sem er sveigjanlegur, lausnamiðaður og tilbúinn að takast á við fjölbreytt verkefni með bros á vör.

Hæfniskröfur:

  • Getur hafið störf 1. júní, eða sem allra fyrst
  • Íslenskukunnátta skilyrði
  • Almenn ökuréttindi
  • Reykleysi
  • 20 ára eða eldri
  • Áreiðanleiki og stundvísi
  • Að vera hress, jákvæð og skemmtileg

Reynsla af sambærilegum störfum er kostur en alls ekki skilyrði. Það sem skiptir mestu máli er rétt hugarfar, góð samskipti og vilji til að vinna samkvæmt hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf.

Um er að ræða dag- og kvöldvaktir, virka daga sem og um helgar. Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningum Eflingar, nánari upplýsingar um launamál má finna á https://npa.is/adstodarfolk/kjarasamningar

Starfið byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf en hægt er að lesa nánar um hugmyndafræðina og notendastýrða persónulega aðstoð hér Hugmyndafræðin um sjálfstætt líf

Auglýsing birt22. maí 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Urðarhvarf 8, 203 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar