

Starfsmaður í heimaþjónustu - helgarvinna
Fjölskyldusvið Fjarðabyggðar leitar eftir metnaðarfullum og áhugasömum einstaklingi til starfa í þjónustuíbúðum eldra fólks og almennri heimaþjónustu í Neskaupstað.
Um er að ræða helgarvinnu frá 10:00-16:00 og er unnið öllu jafna inni á heimilum og eftir þjónustusamningum hvers og eins þjónustuþega. Staðsetning er í Neskaupstað. Möguleiki er á hærra starfshlutfalli ef áhugi liggur fyrir.
Starfsmaður í heimaþjónustu starfar eftir lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991, lögum um málefni aldraðra nr. 125/1999 og reglum Fjarðabyggðar um stuðningsþjónustu. Markmiðið heimaþjónustu er að styðja eldra fólk til að búa sem lengst á eigin heimilum og að rjúfa félagslega einangrun þeirra. Lögð er áhersla á að viðhalda og örva einstaklinga til bættrar andlegrar, líkamlegrar og félagslegrar heilsu.
- Veita persónulega aðstoð
- Stuðningur við þau verk sem þarf að leysa af hendi á heimili notanda
- Félagslegur stuðningur
- Aðstoð við hádegisverð í þjónustuíbúðum fyrir eldra fólk.
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Þjónustulund og jákvæðni í starfi
- Framtakssemi, sjálfstæði og samviskusemi
- Gerð er krafa um að starfsmenn tali og skilji íslensku
- Gerð er krafa um hreint sakavottorð
- Gerð er krafa um bílpróf og eigin bíl til afnota
Íslenska










