K8
K8
K8

Aðstoðarkonur óskast fyrir unglingsstúlku - NPA

Hress og skemmtileg unglingsstúlka óskar eftir ábyrgum og umhyggjusömum aðstoðarkonum til að aðstoða sig við flestar athafnir daglegs lífs og þátttöku í frístundum. Unnið er eftir hugmyndafræði um sjálfstætt líf og fer þjónustan að mestu leyti fram á heimili stúlkunnar sem staðsett er í Reykjavík.

Vinnutími

Óskað er eftir aðstoðarkonum sem gætu sótt stúlkuna í skólann tvisvar í viku og verið með henni frá kl. ca. 12.30 – 16:30.

Hæfni

Reynsla af störfum með fötluðum börnum og/eða ungmennum

Menntun sem nýtist í starfi, til dæmis í sálfræði, þroskaþjálfun eða menntavísindum eða heilbrigðisvísindum

Góð hæfni í mannlegum samskiptum, þolinmæði, sveigjanleiki og stundvísi

Gilt ökuskírteini og hreint sakavottorð

Hafa bíl til umráða

Reykleysi

Góð íslenskukunnátta

Aðeins 20 ára og eldri koma til greina

Annað:

Umsækjendur þurfa að geta hafið störf fljótlega

Starfið hentar vel með skóla eða annarri vinnu

Umsóknir skulu innihalda ferilskrá og upplýsingar um meðmælendur

Auglýsing birt19. júlí 2025
Umsóknarfrestur27. júlí 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Starfstegund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar