Vestmannaeyjabær
Vestmannaeyjabær

Aðalbókari hjá Vestmannaeyjabæ

Laust er til umsóknar starf aðalbókara hjá Vestmannaeyjabæ. Um er að ræða 100 % starf innan stjórnsýslu sveitarfélagsins. Leitað er að einstaklingi með umfangsmikla reynslu sem hefur til að bera frumkvæði, sjálfstæði, hæfni í samskiptum, vilja til teymsivinnu, skipulagshæfni og nákvæmni í vinnubrögðum.

Helstu verkefni og ábyrgð

Yfirumsjón með bókhaldi Vestmananeyjabæjar

Dagleg stýring á bókhaldsvinnu innan stjórnsýslunnar

Afstemmingar, uppgjör og önnur bókhaldsvinna

Ábyrgð á skipulagi bókhalds og að vinnubrögð séu í samræmi við lög og viðurkenndar reikningsskilareglur

Umsjón og ábyrgð á frágangi bókhalds og aðkoma að gerð ársreikninga bæjarsjóðs og stofnana

Vinnur að reglum og verkferlum sem gilda um bókhald sveitarfélagsins og stofnana þess 

Samstarf við rekstraraðila bókhaldskerfa 

Fylgist með þróun rafrænna lausna í bókhaldi og er þátttakandi í stafrænni vegferð sveitarfélagsins 

Menntunar- og hæfniskröfur

Menntun sem nýtist í starfi, s.s viðskiptafræði, viðurkenndur bókari eða sambærileg menntun

Framhaldsmenntun í reikningshaldi og endurskoðun er æskileg

Þekking og reynsla á færslu, skipulagningu og uppgjöri bókhalds er skilyrði

Reynsla af sambærilegu starfi er kostur 

Þekking á lögum og reglum um bókhald og reikningskil sveitarfélaga ásamt lögum um virðisaukaskatt og reglum um undanþágur fyrir sveitarfélög er kostur 

Almenn tölvukunnátta ásamt góðri þekkingu á Office 365 er skilyrði 

Reynsla af Navison bókhaldskerfi er æskileg 

Nákvæm og öguð vinnbrögð eru skilyrði 

Frumkvæði og sjálfstæði í starfi 

Jákvæðir og góðir samstarfshæfileikar og vilji til teymisvinnu

 

Aðrar upplýsingar

Vestmannaeyjabær hvetur öll áhugasöm til að sækja um starfið óháð kyni. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. 

Auglýsing stofnuð7. maí 2024
Umsóknarfrestur23. maí 2024
Tungumálakunnátta
ÍslenskaÍslenskaMeðalhæfni
Staðsetning
Kirkjuvegur 50, 900 Vestmannaeyjar
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.AfstemmingPathCreated with Sketch.ÁrsreikningarPathCreated with Sketch.Opinber stjórnsýslaPathCreated with Sketch.SamvinnaPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Uppgjör
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar