Advania
Advania
Advania

Sérfræðingur á fjármálasviði

Advania óskar eftir að ráða reyndan bókara í stöðu sérfræðings hjá reikningshaldi. Við leitum að ábyrgum og talnaglöggum einstakling sem hefur næmt auga fyrir smáatriðum, brennandi áhuga og ástríðu fyrir því að veita góða þjónustu ásamt drifkrafti til þess að leiða umbætur ferla og verklags til þess að ganga til liðs við fjármálasvið Advania.

Starfslýsing

Helstu verkefni eru dagleg umsjón og bókanir kostnaðarbókhalds, afstemmingar og greiningar, undirbúningur mánaðarlegra uppgjöra og skil á virðisaukaskatti, þátttaka í umbótarverkefnum ásamt öðrum tilfallandi verkefnum

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Reynsla af bókhaldi og uppgjörum
  • Þekking og færni á Navision eða BC er kostur
  • Góð þekking og færni á Excel og góð almenn tölvukunnátta
  • Frumkvæði, áreiðanleiki, nákvæmni og sjálfstæð vinnubrögð
  • Jákvæðni, þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
Auglýsing stofnuð8. maí 2024
Umsóknarfrestur22. maí 2024
Tungumálakunnátta
ÍslenskaÍslenskaFramúrskarandi
Staðsetning
Guðrúnartún 10, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar