

Aðalbókari
KAPP óskar eftir að ráða öflugan og metnaðarfullan aðalbókara til starfa á fjármálasvið félagsins. Um er að ræða fjölbreytt og áhugavert starf við fyrsta flokks vinnuaðstæður í nýjum höfuðstöðvum KAPP í Kópavogi. KAPP er tæknifyrirtæki sem sérhæfir sig í kæliþjónustu, vélasmíði, innflutningi og þjónustu á tækjabúnaði fyrir sjávarútveg, fiskeldi og annan iðnað. KAPP framleiðir OptimICE® krapakerfi, forkæla og RAF sprautuvélarkerfi. Hjá KAPP Skaganum er framleiddur kæli- og frystibúnaður sem seldur er um allan heim. Félögin reka öflug renni-, stál-, véla-, rafmagns- og kæliverkstæði.
Innan KAPP samstæðunnar eru félögin KAPP ehf, KAPP Skaginn ehf og KAMI Tech Inc í USA.
Aðalbókari þarf að hafa góð skil á almennum bókunarferlum, vera áreiðanlegur og talnaglöggur. Viðkomandi mun hafa umsjón með frágangi bókhalds til uppgjörs. Unnið er með DK bókhaldskerfi.
- Færsla bókhalds og afstemmingar
- Móttaka reikninga og samþykktarferli
- Inn- og útflutningur
- Reikningagerð og innheimta
- Uppgjör verkbókhalds
- Uppgjör og skil virðisaukaskatts
- Samstæðuppgjör
- Önnur tilfallandi verkefni
- Viðskiptafræðipróf eða próf sem viðurkenndur bókari er skilyrði
- Að lágmarki þriggja ára starfsreynsla á sviði bókhalds- og uppgjörsvinnu
- Reynsla af vinnu með DK bókhaldskerfi
- Gott vald á MS Office lausnum
- Frumkvæði og geta til að vinna sjálfstætt
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Jákvæðni og færni í mannlegum samskiptum
- Geta unnið undir álagi og reynsla af fjölbreyttu starfi kostur













