

Vélahönnuður
KAPP óskar eftir að ráða til framtíðarstarfa Vélahönnuð með brennandi áhuga á að taka þátt í hönnun á nýjum söluverkum, vélum og lausnum félagsins.
Um er að ræða fjölbreytt og áhugavert starf við fyrsta flokks vinnuaðstæður í aðstöðum félagsins á Akranesi og/eða Kópavogi. KAPP er tæknifyrirtæki sem sérhæfir sig í hátæknilausnum fyrir sjávarútveg sem og aðra iðnaði. Starfið tilheyrir hönnunardeild KAPP Skagans og vinnur að lausnum er snúa að vöruflóru og -framboði félagsins.
Starfið krefst þekkingar og reynslu úr vélahönnun úr sambærilegum iðnaði, ásamt getu til þess að geta unnið bæði sjálfstætt og í hóp.
Helstu ábyrgðarsvið sem falla undir starfið eru meðal annars;
· Hönnun á lausnum og vélum fyrir matvæla iðnað
· Vöruþróun á nýjun lausnum
· Umbætur og hönnunarbreytingar á eldri lausnum félagsins
· Gerð hönnunargagna (teikningar, verklýsingar of.l)
· Aðstoða þjónustu deild, t.d. við bilanagreiningar, gagnaöflun os.frv
· Veita þjálfun og aðstoð til viðskiptavina sem og samstarfsfélaga
· Önnur tilfallandi störf í samvinnu við næsta yfirmann
Menntun og reynsla á sviði vélahönnunar
· Reynsla á sviði vélahönnunar fyrir matvæla iðnað er mikill kostur
· Þekking á teikniforritum í bæði 2D og 3D
· Reynsla af Inventor og AutoCad er mikill kostur
· Hæfni í samskiptum og að vinna með öðrum
· Rík þjónustulund
· Góð íslensku og ensku kunnátta













