KAPP ehf
KAPP ehf
KAPP ehf

Aðalbókari

Vegna aukinna umsvifa óskar KAPP eftir að ráða öflugan og metnaðarfullan aðalbókara til starfa á fjármálasvið félagsins. Um er að ræða fjölbreytt og áhugavert starf við fyrsta flokks vinnuaðstæður í nýjum höfuðstöðvum KAPP í Kópavogi. KAPP er tæknifyrirtæki sem sérhæfir sig í kæliþjónustu, vélasmíði, innflutningi og þjónustu á tækjabúnaði fyrir sjávarútveg, fiskeldi og annan iðnað. KAPP framleiðir OptimICE® krapakerfi, forkæla og RAF sprautuvélarkerfi. Hjá KAPP Skaganum er framleiddur kæli- og frystibúnaður sem seldur er um allan heim. Félögin reka öflug renni-, stál-, véla-, rafmagns- og kæliverkstæði.

Innan KAPP samstæðunnar eru félögin KAPP ehf, KAPP Skaginn ehf og KAMI Tech Inc í USA.

Aðalbókari þarf að hafa góð skil á almennum bókunarferlum, vera áreiðanlegur og talnaglöggur. Viðkomandi mun hafa umsjón með frágangi bókhalds til uppgjörs. Unnið er með DK bókhaldskerfi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Færsla bókhalds og afstemmingar
  • Móttaka reikninga og samþykktarferli
  • Inn- og útflutningur
  • Reikningagerð og innheimta
  • Uppgjör verkbókhalds
  • Uppgjör og skil virðisaukaskatts
  • Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Viðskiptafræðipróf eða próf sem viðurkenndur bókari er skilyrði
  • Að lágmarki þriggja ára starfsreynsla á sviði bókhalds- og uppgjörsvinnu
  • Reynsla af vinnu með DK bókhaldskerfi
  • Gott vald á MS Office lausnum
  • Frumkvæði og geta til að vinna sjálfstætt
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Jákvæðni og færni í mannlegum samskiptum
  • Geta unnið undir álagi og reynsla af fjölbreyttu starfi kostur
Auglýsing birt7. febrúar 2025
Umsóknarfrestur23. febrúar 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Turnahvarf 8, 203 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.AfstemmingPathCreated with Sketch.DKPathCreated with Sketch.ReikningagerðPathCreated with Sketch.Uppgjör
Starfsgreinar
Starfsmerkingar