Fastus
Þann 1. janúar 2024 sameinuðust fyritækin Fastus, Expert, Expert kæling og GS Import undir einni kennitölu. Hið sameinaða félag heitir Fastus ehf. en skiptist í tvö meginsvið; Fastus heilsu og Expert. Af þessu tilefni hefur farið fram gagnger endurskoðun á útliti fyrirtækjanna og heildarásýnd.
Fastus ehf er framsækið þjónustufyrirtæki sem sér fyrirtækjum og stofnunum fyrir hágæða vörum, tækjum og búnaði.
Markmið okkar hefur frá upphafi verið að byggja upp lifandi fyrirtæki sem skarar fram úr á krefjandi markaði og vera fyrsti valkostur viðskiptavina, birgja og annarra samstarfsaðila. Forsenda þess er þekking, reynsla og metnaður starfsfólks sem nýtur þess að ná árangri og vaxa með hverju verki.
Aðalbókari
Við leitum að öflugum og nákvæmum aðalbókara sem hefur yfirgripsmikla reynslu af bókhaldi og fjármálastýringu. Ef þú hefur brennandi áhuga á fjármálum og vilt starfa í krefjandi og spennandi umhverfi þar sem fagmennska og nákvæmni eru í fyrirrúmi, þá hvetjum við þig til að sækja um.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sjálfstæð og ábyrgðarmikil vinna þar sem markvisst skipulag og eftirfylgni skiptir lykilmáli.
- Ábyrgð á fjárhagslegri eftirfylgni og eftirliti með kostnaði og tekjum.
- Þjónusta við innri aðila og aðra hagsmunaaðila.
- Fagleg ábyrgð á verkefnum, en helstu ákvarðanir eru teknar í samráði við yfirmann.
- Færsla bókhalds og uppsetning reikninga fyrir uppáskriftarkerfi.
- Framkvæmd mánaðarlegra og ársfjórðungslegra uppgjöra og samskipti við endurskoðendur.
- Yfirumsjón með afstemmingum, þ.m.t. fjárhagsbókhald, viðskiptamenn, innlenda lánadrottna og bankaafstemmingar.
- Bókun erlendra og innlendra greiðslna.
- Önnur tilfallandi verkefni sem tengjast fjármálastjórnun og rekstri.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Viðeigandi menntun á sviði bókhalds, fjármála eða rekstrar, svo sem háskólapróf, fagmenntun eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi.
- Talsverð starfsreynsla á sviði bókhalds og fjármála.
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi ásamt skipulagshæfni og nákvæmni.
- Góð samskiptafærni og hæfni til að miðla upplýsingum á íslensku og ensku.
- Góð þekking á bókhaldskerfum og almenn tölvukunnátta.
- Þekking á noktun RPA (sjálfvirknivæðingu viðskiptaferla) er kostur
Fríðindi í starfi
- Samgöngustyrkur
- Líkamsræktarstyrkur
- Mötuneyti
- Sveigjanlegur vinnutími
Auglýsing birt7. febrúar 2025
Umsóknarfrestur21. febrúar 2025
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Höfðabakki 7, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
AfstemmingFjárhagsáætlanagerðFrumkvæðiMannleg samskiptiNavisionSjálfstæð vinnubrögð
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)
Sérfræðingur á sviði fjármála
Mennta- og barnamálaráðuneyti
Deildarstjóri hagdeildar
Norðurál
Vanur bókari
Bókhaldsþjónusta
Bókari
Controlant
Sérfræðingur í bókhaldi hjá ECIT Bókað ehf.
ECIT
Sérfræðingar í bókhaldi og uppgjörum
LOGN Bókhald
Fjárfestingastjóri
Nýsköpunarsjóðurinn Kría
Öflugur bókari
Fjárhúsið - Spekt ehf.
Bókari með reynslu af sjálfbærnimálum
ICEWEAR
Reyndur bókari
Flügger Litir
Fjármálaráðgjafi á Hvolsvelli
Landsbankinn
Sérfræðingar í bókhaldi og uppgjörum
ODT