

UT kennsluráðgjafi - Hraunvallaskóli
Hraunvallaskóli óskar eftir að ráða UT kennsluráðgjafa, starfið er 50% en möguleiki er að auka við starfshlutfall með kennslu við skólann.
Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2026.
Hraunvallaskóli hefur þá sérstöðu að innan veggja hans er rekinn bæði leik- og grunnskóli. Skólinn starfar eftir hugmyndafræði opna skólans og er byggingin hönnuð með það í huga. Í kennsluskipulagi er lögð áhersla á skipulag sem byggir á hópavinnu, þemanámi, einstaklingsvinnu, þrautalausnum, gagnrýnni hugsun og færni nemenda til að afla sér þekkingar og nýta sér nýjustu upplýsinga- og samskiptatækni í því skyni. Kennarar vinna saman í teymum í kennslustundum og við skipulagningu og undirbúning kennslunnar. Nemendur í sama árgangi eru í sameiginlegum umsjónarhópum með sameiginlega umsjónarkennara á sínum heimasvæðum.
Dyggðir Hraunvallaskóla eru vinátta, samvinna og ábyrgð.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Verkumsjón með spjaldtölvum skólans í samráði við tölvudeild bæjarins.
- Veitir starfsfólki skóla kennsluráðgjöf á starfssviði sínu, upplýsingatækni með áherslu á spjaldtölvunotkun (iPad).
- Aðstoðar við gerð kennsluáætlana og tekur þátt í skólanámskrárgerð er snertir upplýsingatækni.
- Fylgir eftir stefnumótun skólans á sviði upplýsingatækni í skólastarfi og í samstarfi við þróunar- og tölvudeild Hafnarfjarðarbæjar og skrifstofu mennta- og lýðheilsusviðs.
- Sinnir umsýslu spjaldtölva skólans svo þær nýtist í kennslufræðilegum tilgangi og aðstoðar nemendur við notkun spjaldtölva.
- Er þróunar- og tölvudeild til aðstoðar við lausn tæknilegra vandamála sem geta komið upp innan skóla. Er tengiliður við þróunar- og tölvudeild um lausn tæknilegra vandamála sem geta komið upp innan skólans.
- Er skólastjórnendum til ráðgjafar varðandi upplýsinga- og samskiptatækni í grunnskólastarfi.
- Önnur verkefni sem yfirmaður felur starfsmanni og tengjast starfssviði hans.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf kennara
- Framhaldsmenntun á sviði verkefnastjórnunar og/eða upplýsingatæknimenntunar æskileg
- Sem víðtækust kennslureynsla í grunnskóla
- Reynsla af verkefnastjórnun æskileg
- Reynsla af kennsluráðgjöf æskileg
- Góð íslenskukunnátta, C1 tungumálastaðall ETM Sjálfsmatsrammi (coe.int)
Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Lars Jóhann Imsland skólastjóri, [email protected] og Aðalbjörg Sigurðardóttir, [email protected], í síma 590 2800.
Umsóknarfrestur er til og með 9. júní 2026
Greinargóð ferilskrá og leyfisbréf fylgi umsókn.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
islandzki






























