Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Skóla- og frístundaliði - Öldutúnsskóli

Öldutúnsskóli auglýsir eftir skóla- og frístundaliða fyrir skólaárið 2026-2027

Öldutúnsskóli auglýsir eftir drífandi og kraftmiklum skóla- og frístundaliða í 50% starf í frístundaheimilið Selið.

Um er að ræða hlutastarf sem felur í sér stuðning og aðstoð við nemendur í 1. – 4. bekk í frístundaheimilinu Selinu eftir hádegi virka daga frá kl. 13:00 til kl. 17:00. Starfið hentar vel sem aukavinna með námi eða öðru starfi.

Selið býður upp á fjölbreytt tómstundastarf þar sem lögð er áhersla á skipulagðar tómstundir við hæfi hvers og eins. Á skipulagsdögum skólans og virkum dögum í jóla- og páskafríi er frístundaheimilið opið frá kl. 8:00–16:30.

Í Öldutúnsskóla er lögð áhersla á skapandi og gefandi umhverfi þar sem allir leitast við að gera nám og starf áhugavert og skemmtilegt. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda, fjölbreytt viðfangsefni og öfluga teymisvinnu.

Einkunnarorð skólans eru virðing, virkni og vellíðan og grundvallast starf skólans á þeim gildum. Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT um jákvæða skólafærni og Olweusaráætlun gegn einelti og andfélagslegri hegðun.

Í Öldutúnsskóla eru um 580 nemendur í 1. - 10. bekk.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Aðstoða við faglegt starf með nemendum.
  • Starfa samkvæmt leiðsögn næsta yfirmanns.
  • Stuðla að góðum aga og jákvæðum samskiptum.
  • Taka þátt í skipulagningu, undirbúningi og framkvæmd fjölbreytts tómstundastarfs.
  • Stuðla að velferð barna í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
  • Leitast við að virkja alla nemendur, óháð getu eða þroska, til þátttöku í fjölbreyttum verkefnum og viðburðum.
  • Sinna öðrum verkefnum samkvæmt starfslýsingu og fyrirmælum yfirmanns.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla af og áhugi af starfi með börnum.
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Jákvætt viðmót og góð hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
  • Stundvísi og samviskusemi.
  • Mjög góð íslenskukunnátta, að lágmarki C1 samkvæmt skv. viðmiðum Evrópska tungumálarammans

Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.

Nánari upplýsingar veita Kristján Hans Óskarsson deildarstjóri tómstundamiðstöðvar eða í síma 664-5712, Margrét Sverrisdóttir, skólastjóri, eða Áslaug Hreiðarsdóttir eða í síma 555-1546

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við STH

Umsóknarfrestur er til 4. júní 2026

Greinargóð ferilsskrá fylgi umsókn.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Utworzono ofertę pracy26. May 2026
Termin nadsyłania podań4. June 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Öldutún 9, 220 Hafnarfjörður
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe