Barnaskóli Kársness
Barnaskóli Kársness
Barnaskóli Kársness

Aðstoðarforstöðumanneskja frístundar

Barnaskóli Kársness er nýr skóli sem hýsir fjögurra deilda leikskóla og yngsta stig grunnskóla ásamt frístund. Skólabyggingin er öll hin glæsilegasta sem skapar spennandi tækifæri í skólastarfi fyrir um 60-80 leikskólabörn og um 300 nemendur í 1.-4. bekk.

Við leitum að jákvæðum og áhugasömum einstaklingi í í starf aðstoðarforstöðumanneskju frístundar í Barnaskóla Kársness frá og með ágúst 2026. Aðstoðarforstöðumanneskja frístundar vinnur að mótun faglegs starfs og starfsáætlun í samráði við forstöðumann og skólastjóra. Aðstoðarforstöðumanneskja hefur umsjón með skipulagi daglegrar starfsemi í frístund ásamt forstöðumanni, ber ábyrgð á móttöku og skráningu barna og eftirliti með viðveru þeirra meðan á dvalartíma stendur í samvinnu við forstöðumann.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þátttaka í gerð starfsáætlana í samvinnu við forstöðumann frístundar og skólastjóra og eftirfylgni með framkvæmd þeirra
  • Þátttaka í skipulagningu hópastarfs og annars faglegs starfs með börnum
  • Umsjón með samskiptum við foreldra, starfsfólk skóla og frístundar, stjórnendur og íþróttafélög vegna barna 
  • Hópastarf með börnum inni og úti
  • Umsjón með móttöku, eftirliti og brottför barna
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Stúdentspróf, sambærileg menntun sem nýtist í starfi eða umtalsverð reynsla á starfssviði
  • Háskólanám á sviði tómstundafræða, uppeldisfræða eða tengdra greina er kostur
  • Reynsla af stjórnun og skipulögðu starfi með börnum er æskileg
  • Hæfni til að skipuleggja faglegt starf og veita því forystu
  • Samskiptahæfni, frumkvæði og sköpunargleði
  • Færni og vilji til að starfa í teymi með velferð og farsæld barna að leiðarljósi
  • Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti
Fríðindi í starfi

Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins.

Utworzono ofertę pracy26. May 2026
Termin nadsyłania podań9. June 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Skólagerði 1, 200 Kópavogur
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe