Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Tónmenntakennari /sviðslistakennari – Lækjarskóli

Lækjarskóli óskar eftir tónmenntakennara - sviðslistakennara í 100% starf

Lækjarskóli á sér sögu allt aftur til ársins 1877 og er staðsettur í fallegu og grónu umhverfi við Lækinn í Hafnarfirði. Reist var ný skólabygging, björt og rúmgóð, og tekin í notkun árið 2002. Hér er meðal annars að finna bæði sundlaug og íþróttahús. Nemendur eru tæplega 500 talsins. Undanfarið skólaár höfum við unnið markvisst með þrjú meginmarkmið: Starfsánægju, samræmt námsmat og upplýsingatækni.

Einkunnarorð Lækjarskóla eru ábyrgð, virðing og öryggi, og endurspeglast allt skólastarfið í þessum orðum. Unnið er samkvæmt SMT-skólafærni sem þýðir að áhersla er lögð á að nálgast nemendur á jákvæðan hátt, gefa góðri hegðun meiri gaum og skapa jákvæðan skólabrag.

Fyrir nokkrum árum hóf Lækjarskóli innleiðingu á Universal Design for Learning (UDL). UDL er aðferðafræði sem er byggð á rannsóknum David Rose (Boston Harvard,1984). UDL veitir nemendum möguleika á að læra á ólíka vegu og að sýna kunnáttu sína á ólíka hátt. Nemendur eru virkir og hafa áhrif á eigið nám og er tilgangurinn að útrýma hindrunum sem standa í vegi fyrir árangri nemenda og fá þá til að taka virkan þátt og bera ábyrgð á eigin námi.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Að annast kennslu nemenda
  • Að standa vörð um velferð og nám barnanna
  • Að þróa í samvinnu við samstarfsmenn framsækið og faglegt starf með áherslu á fjölbreyttar námsnálganir
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu í grunnskóla (leyfisbréf skal fylgja umsókn)
  • Reynsla af tónmennta og/eða sviðslistakennslu í grunnskóla eða tónlistarskóla æskileg
  • Kostur ef viðkomandi spilar á hljóðfæri og getur stýrt fjöldasöng
  • Reynsla og þekking á fjölbreyttum kennsluaðferðum
  • Áhugi á teymisvinnu
  • Hæfni í samskiptum
  • Frumleiki og sjálfstæði
  • Brennandi áhugi fyrir kennarastarfinu
  • Góð tölvukunnátta
  • Jákvæðni ogáhugi á að starfa í skapandi umhverfi
  • Stundvísi og samviskusemi

Ef þetta er eitthvað sem vekur áhuga þinn ekki hika við að hafa samband við okkur í Lækjarskóla.

Hafðu samband við Dögg Gunnarsdóttur skólastjóra, [email protected]

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags grunnskólakennara.

Umsóknarfrestur er til og með 9. júní 2026.

Greinargóð ferilskrá fylgi umsókn.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Utworzono ofertę pracy26. May 2026
Termin nadsyłania podań9. June 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Sólvangsvegur 4, 220 Hafnarfjörður
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe