

Sérkennari óskast í Kóraskóla
Kóraskóli óskar eftir áhugasömum sérkennara til að taka þátt í skólastarfi með okkur.
Kóraskóli tók til starfa haustið 2023. Í skólanum eru 280 nemendur í 8.-10. bekk og um 30 starfsmenn. Í skólanum er lögð áhersla á skapandi og framsækið skólastarf og eru allir nemendur skólans með spjaldtölvur. Í námi og kennslu er rík áhersla á einstaklingsmiðun náms, fjölbreytta kennsluhætti, leiðsagnarnám, verkefnamiðað nám, samþætt þemanám, teymiskennslu og samkennslu.
Starfið felst í því að vinna í teymi þar sem áherslan er lögð á þematengt, verkefnamiðað leiðsagnarnám. Í skólanum er lögð áhersla á skapandi og framsækið skólastarf. Í námi og kennslu er rík áhersla lögð á einstaklingsmiðun náms, fjölbreytta kennsluhætti, teymiskennslu og samþætt þemanám. Allir nemendur skólans eru með spjaldtölvur.
- Að vinna í árgangateymi og lausnarteymi skólans
- Sér um gerð einstaklingsáætlana í samráði við umsjónarkennara, foreldra, nemendur og aðra eftir því sem við á
- Annast ráðgjöf, upplýsingagjöf og upplýsingaöflun vegna sérþarfa nemenda sinna til foreldra og annarra hlutaðeigandi
- Tekur þátt í kennara- og starfsmannafundum
- Ber ábyrgð aðlögun námsefnis og metur árangur og endurskoðun markmiða í samstafi við samstarfsaðila
- Kennaramenntun og leyfisbréf kennara
- Framhaldsmenntun í sérkennslufræðum eða sambærileg menntun æskileg
- Reynsla af starfi með nemendum með sérþarfir er kostur
- Reynsla af einstaklingsmiðaðri nálgun í kennslu og þekking á fjölbreyttum kennsluháttum er kostur
- Frumkvæði, skipulagshæfileikar og sjálfstæði í starfi
- Jákvæðni, þolinmæði og góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Góð íslenskukunnátta
Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins.
islandzki










