Grunnskóli Fáskrúðsfjarðar
Grunnskóli Fáskrúðsfjarðar
Grunnskóli Fáskrúðsfjarðar

Kennarastaða við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar

Laus er staða grunnskólakennara við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar.

Í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar eru tæplega 100 nemendur. Skólinn er hluti af Skólamiðstöð þar sem náin samvinna er við leikskóla, tónlistarskóla og bókasafn. Nóg er af lausu húsnæði á Fáskrúðsfirði og í sveitarfélaginu. Mikil áhersla er lögð á teymisvinnu á öllum sviðum skólastarfsins og sameiginlegri ábyrgð í starfi, ekki síst í stjórnendateymi, umsjónarkennarateymum og lausnarteymi skólans.

Í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar er mikil áhersla lögð á velferð nemenda og starfsfólks og litið svo á að hún sé lykillinn að árangri í öllum verkefnum. Unnið er í anda leiðsagnarnáms og byrjendalæsi. Unnið er eftir metnaðarfullri áætlun gegn einelti og lögð er áhersla á ART kennslu. Stefnumörkun skólans tekur meðal annars mið af uppbyggingarstefnunni Uppeldi til ábyrgðar sem miðar að því að ýta undir ábyrgðarkennd og sjálfsstjórn barna og unglinga. Skólinn tekur virkan þátt í ýmsu þróunarstarfi með öðrum skólum í Fjarðabyggð. Kjörorð skólans eru "ánægja, ábyrgð, árangur". Nánari upplýsingar um skólann er að finna á heimasíðu, www.fask.is.

Leitað er að lausnarmiðuðum kennara sem er tilbúinn að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi.

Helstu verkefni og ábyrgð

●      Annast kennslu samkvæmt megin markmiðum Aðalnámskrá grunnskólanna með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda

●      Að vinna við námsmat í Mentor, nemendaskrár og aðrar nauðsynlegar skýrslur.

●      Að hafa hagsmuni nemenda að leiðarljósi og sýna hverjum og einum virðingu, áhuga og umhyggju.

●      Starfar með umsjónarkennurum og námsráðgjöfum og veitir upplýsingar um námsgengi einstakra nemenda.

●      Tekur þátt í skólaþróun í samræmi við stefnu skólans og sveitarfélagsins.

Menntunar- og hæfniskröfur

·       Leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari.

·       Íslenskukunnátta á stigi C1 skv. Evrópska tungumálarammanum

·       Samskipta og samstarfshæfni.

·       Frumkvæði og faglegur metnaður.

·       Ábyrgð í starfi og stundvísi.

·       Skipulagshæfileikar.

·       Áhugi á að taka þátt í teymisstarfi og umbótaverkefnum

Utworzono ofertę pracy21. May 2026
Termin nadsyłania podań5. June 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
Lokalizacja
Hlíðargata 56, 750 Fáskrúðsfjörður
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.NauczycielPathCreated with Sketch.UczeniePathCreated with Sketch.Praca zespołowa
Zawody
Tagi zawodowe