Auðarskóli - Dalabyggð
Auðarskóli - Dalabyggð

Skólastjóri Auðarskóla – Dalabyggð

Dalabyggð leitar að skólastjóra Auðarskóla, samrekinn leik-, tónlistar- og grunnskóla í Búðardal. Við leitum að leiðtoga með metnað, hlýju og áhuga á öflugu skólastarfi í samfélagi þar sem hægt er að hafa raunveruleg áhrif.

Skólastjóri ber ábyrgð á starfsemi skólans, rekstri og mannauðsmálum. Hann gegnir lykilhlutverki í mótun skólastarfsins og í samstarfi skóla og samfélags.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Stjórnun og ábyrgð á daglegri starfsemi og rekstri skólans
  • Veita faglega forystu og leiða þróun skólastarfs í samræmi við menntastefnu Dalabyggðar
  • Hafa forystu um og styðja samstarf í samræmi við farsældarlög
  • Leiða samstarf starfsfólks, nemenda, heimila og skólasamfélagsins í heild
  • Samstarf við fræðslunefnd, sveitarstjóra og sveitarstjórn
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf til kennslu og kennslureynsla á grunnskólastigi
  • Framhaldsmenntun í stjórnun eða uppeldis- og kennslufræðum er æskileg
  • Reynsla af stjórnun og faglegri forystu í skólastarfi
  • Reynsla af rekstri og gerð fjárhagsáætlana er æskileg
  • Framúrskarandi hæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Leiðtogafærni, metnaður og styrkur til ákvarðana
  • Skipulagshæfni og góð yfirsýn
  • Góð hæfni til að tjá sig í ræðu og riti, á íslensku og ensku
Utworzono ofertę pracy26. May 2026
Termin nadsyłania podań1. June 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
AngielskiAngielski
Wymagane
Doskonale
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe