Baugur
Baugur
Baugur

Leikskólakennari skólaárið 2026-2027

Í Baugi starfa milli 50 og 60 manns sem sameinast á hverjum degi um það að hafa gaman. Gleði er að okkar mati lykillinn að starfsánægju. Við höfum gert með okkur sáttmála sem stuðlar að vellíðan starfsfólks en skýr, skilvirk, hlý og jákvæð samskipti eru þar í forgrunni. Samvinna og metnaður til að gera vel sameinar okkur alla daga og skapar okkar frábæru liðsheild!

Leikskólinn Baugur er 8 deilda leikskóli með 143 börnum í Kórahverfi í Kópavogi. Leikskólinn leggur áherslu á að skapa fjölbreytilegt leikumhverfi sem ýtir undir ímyndunarafl, sköpunarkraft og tjáningu barnanna. Unnið er að innleiðingu "Uppeldi til ábyrgðar" en finna má nánari upplýsingarum leikskólann á http://baugur.kopavogur.is/.

Vekjum athygli á nýjum nálgunum er varða bætt starfsumhverfi barna og kennarar í leikskólum Kópavogs. Sjá nánar hér

Um er að ræða 100% starf og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf í ágúst.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Starfið felur í sér kennslu og umönnun
  • Sinnir verkefnum er varða uppeldi og menntun barnanna sem yfirmaður felur honum
  • Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs deildar undir stjórn deildarstjóra
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara. Ef ekki fæst leikskólakennari kemur til greina að ráða einstakling með aðra uppeldismenntun eða leiðbeinanda
  • Reynsla af vinnu með börnum
  • Góðir samskiptahæfileikar og hæfni til að vinna í hóp
  • Ábyrgð, áreiðanleiki og jákvæðni
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Stundvísi og áreiðanleiki
  • Mjög gott vald á íslensku
Fríðindi í starfi
  • 36 klukkustunda vinnuvika
  • Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins
  • Jólafrí
  • Vetrarfrí
  • Páskafrí
Utworzono ofertę pracy18. May 2026
Termin nadsyłania podań9. June 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Baugakór 36, 203 Kópavogur
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.InicjatywaPathCreated with Sketch.Pozytywne nastawieniePathCreated with Sketch.NauczycielPathCreated with Sketch.AmbicjaPathCreated with Sketch.SumiennośćPathCreated with Sketch.Samodzielność w pracyPathCreated with Sketch.OrganizacjaPathCreated with Sketch.PunktualnośćPathCreated with Sketch.Praca zespołowaPathCreated with Sketch.Opieka (dzieci/seniorzy/niepełnosprawni)
Środowisko pracy
Zawody
Tagi zawodowe