Kársnesskóli
Kársnesskóli
Kársnesskóli

Kennari í íslensku sem annað mál í Kársnesskóla

Kársnesskóli óskar eftir ísat-kennara til að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi

Kársnesskóli er framsækinn grunnskóli í vesturbæ Kópavogs. Hann byggir á gamalli sögu og góðum gildum en er nú nýr skóli með um 400 nemendur í 5. - 10. bekk. Við skólann starfa um 60 starfsmenn og þar ríkir góður starfsandi.

Í Kársnesskóla er teymiskennsla og áhersla á fjölbreytta kennsluhætti með það að markmiði að allir nemendur nái árangri. Unnið er skv. uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar. Allir nemendur eru með spjaldtölvur.

Gildi skólans eru virðing, þekking, ábyrgð og ánægja.

Ráðningartími og starfshlutfall Um er að ræða 100% framtíðarstarf frá 1. ágúst 2026

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Kennsla í íslensku sem annað mál skv. aðalnámskrá
  • Skipulagning og aðlögun náms nemenda með mismunandi menningar- og tungumálabakgrunn
  • Þjáflun félagsfærni og sjálfstæðra vinnubragða nemenda
  • Stuðningur við nemendur í daglegu starfi í samstarfi við umsjónarkennara og deildarstjóra
  • Ráðgjöf við kennara og foreldra um nám og kennslu
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagfólk
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leyfisbréf til kennslu
  • Framhaldsmenntun í kennslu íslensku sem annars tungumáls er æskileg
  • Reynsla af kennslu nemenda með mismunandi menningar- og tungumálabakgrunn æskileg
  • Reynsla af einstaklingsmiðaðri nálgun í kennslu
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Þekking og áhugi á kennslu- og uppeldisfræði
  • Einlægur áhugi á að vinna með börnum og unglingum
  • Þolinmæði og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Stundvísi og áreiðanleiki er skilyrði

Frekari upplýsingar

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.

Starfsmenn Kópavogsbæjar fá frítt í sundlaugar sveitarfélagsins.

Upplýsingar gefur Sigrún Valdimarsdóttir skólastjóri í síma 441-4600 og í gegnum netfangið [email protected]

Öll, óháð kyni eru hvött til að sækja um starfið.

Umsóknum skal fylgja ferilskrá.

Utworzono ofertę pracy21. May 2026
Termin nadsyłania podań4. June 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
Lokalizacja
Kópavogsbraut 58, 200 Kópavogur
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.InicjatywaPathCreated with Sketch.Pozytywne nastawieniePathCreated with Sketch.Sprawność fizycznaPathCreated with Sketch.SumiennośćPathCreated with Sketch.PunktualnośćPathCreated with Sketch.ElastycznośćPathCreated with Sketch.Cierpliwość
Zawody
Tagi zawodowe