Leikskólinn Höfðaberg
Leikskólinn Höfðaberg
Leikskólinn Höfðaberg

Höfðaberg óskar eftir leikskólakennurum fyrir næsta skólaár

Leikskólinn Höfðaberg leitar að leikskólakennurum og/eða starfsfólki með aðra menntun og reynslu sem nýtist í starfi.
Gert er ráð fyrir að viðkomandi hefji störf þann 10.ágúst.

Má bjóða þér að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi?
Viltu vera hluti af góðum og öflugum starfsmannahópi sem vinnur saman að því að mæta ólíkum einstaklingum í skemmtilegum verkefnum?

Í Höfðabergi eru 162 börn á 9 deildum.

Starfshlutfall er 100% og um framtíðarstarf er að ræða.

Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinnur að uppeldi og menntun barna
  • Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf kennara með áherslu á leikskólastarf eða aðra sambærilega menntun.
  • Virðing í starfi
  • Fagleg framkoma.
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði.
  • Frumkvæði og metnaður í starfi.
  • Jákvæðni og góð hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Reynsla í starfi með leikskólabörnum.
  • Áhugi á að vinna með börnum.
Fríðindi í starfi
  • Samgöngustyrkur
  • Líkamsræktarstyrkur 
  • Sundkort í sundlaugar Mosfellsbæjar
  • Styttri vinnuvika. 36 stunda vinnuviku er náð með 38 stunda vinnuframlagi vikulega. Starfsfólk safnar tveimur stundum vikulega sem nýttir eru sem frí á skráningardögum leikskóla Mosfellsbæjar
Utworzono ofertę pracy18. May 2026
Termin nadsyłania podań1. June 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Æðarhöfði 2, 270 Mosfellsbær
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.InicjatywaPathCreated with Sketch.Pozytywne nastawieniePathCreated with Sketch.NauczycielPathCreated with Sketch.AmbicjaPathCreated with Sketch.Praca zespołowa
Środowisko pracy
Zawody
Tagi zawodowe