
Leikskólinn Höfðaberg
Höfðaberg er útibú frá Lágafellsskóla sem hóf störf skólaárið 2014-15 og er staðsett við Æðarhöfða. Þá voru nemendur við Höfðaberg 124 talsins í þremur fimm ára deildum og fjórum 1. bekkjum. Skólaárið 2021-22 eru nemendur á Höfðabergi 140 talsins í fimm þriggja-fjögurra ára deildum (Lóu-, Spóa-, Kríu-, Uglu- og Lundabergi) og tveimur fimm ára deildum (Blika- og Þrastarbergi). Öll grunnskólabörn eru í vetur komin í aðalbyggingu skólans.

Leikskólinn Höfðaberg óskar eftir að ráða þroskaþjálfa eða leikskólasérkennara
Leikskólinn Höfðaberg óskar eftir að ráða þroskaþjálfa eða leikskólasérkennara til starfa.
Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf þann 10. ágúst.
Má bjóða þér að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi?
Viltu vera hluti af góðum og öflugum starfsmannahópi sem vinnur saman að því að mæta ólíkum einstaklingum í skemmtilegum verkefnum?
Í Höfðabergi eru 162 börn á 9 deildum. Börnin eru á aldrinum 3-5 ára.
Starfshlutfall er 100% og um framtíðarstarf er að ræða.
Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Veita stuðning og leiðsögn við börn með félagslegar áskoranir með áherslu á samleik, jákvæð samskipti og þátttöku í barnahópnum
- Sinna einstaklingsmiðaðri færniþjálfun með áherslu á almenna færni, fín- og grófhreyfinga og sjálfsbjörg
- Veita ráðgjöf og stuðning við deildarstjóra og annað starfsfólk varðandi skipulag og útfærslu á námi og umönnun barna með sérþarfir
- Taka þátt í gerð einstaklingsnámskráa, áætlana og aðlögun námsefnis í samvinnu við deildarstjóra og sérkennslustjóra
- Sýna virka þátttöku í stoðþjónustuteymi leikskólans og samstarfi við foreldra og sérfræðinga
- Vinna að almennu uppeldi og menntun barna samkvæmt Aðalnámskrá leikskóla
Menntunar- og hæfniskröfur
- Þroskaþjálfamenntun, sérkennararmenntun eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af vinnu með börnum
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum, þolinmæði og jákvætt viðmót í starfi með börnum
- Góð íslenskukunnátta
- Stundvísi, áreiðanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum
Fríðindi í starfi
- Samgöngustyrkur
- Líkamsræktarstyrkur
- Sundkort í sundlaugar Mosfellsbæjar
- Styttri vinnuvika. 36 stunda vinnuviku er náð með 38 stunda vinnuframlagi vikulega. Starfsfólk safnar tveimur stundum vikulega sem nýttir eru sem frí á skráningardögum leikskóla Mosfellsbæjar
Utworzono ofertę pracy19. May 2026
Termin nadsyłania podań2. June 2026
Znajomość języków
islandzkiWymagane
Lokalizacja
Æðarhöfði 2, 270 Mosfellsbær
Rodzaj pracy
Kompetencje
InicjatywaBez kryminalnej przeszłościSumiennośćSamodzielność w pracy
Środowisko pracy
Zawody
Tagi zawodowe
Więcej ofert pracy (1)
Podobne oferty pracy (12)

Leikskólakennari/leiðbeinandi
Ævintýraborg við Eggertsgötu

Sérkennari - Leikskólinn Hvammur
Hafnarfjarðarbær

Sérkennari óskast í Kóraskóla
Kóraskóli

ÍSAT kennari í tungumálaveri við Seljaskóla
Seljaskóli

Háskólamenntaður starfsmaður óskast í sérskóla
Arnarskóli

Starfsmaður á leikskóla, fullt starf
Seltjarnarnesbær

Leikskólakennari/kennari
Seltjarnarnesbær

Þroskaþjálfi við Nesskóla
Nesskóli

Glerárskóli: Atferlisfræðingur, þroskaþjálfi eða einstaklingur með háskólamenntun sem nýtist
Akureyri

Leikskólakennarar óskast í Krikaskóla fyrir næsta skólaár
Krikaskóli

Urriðaholtsskóli - sérkennari á mið- og unglingastigi
Garðabær

Skýjaborg auglýsir eftir leikskólasérkennara / þroskaþjálfa
Leikskólinn Skýjaborg