Leikskólinn Skýjaborg
Leikskólinn Skýjaborg
Leikskólinn Skýjaborg

Skýjaborg auglýsir eftir leikskólasérkennara / þroskaþjálfa

Leitað er að leikskólasérkennara / þroskaþjálfa í 100% ótímabundna stöðu frá 10. ágúst 2025 eða eftir samkomulagi.

Skýjaborg er tveggja deilda leikskóli í Melahverfi í Hvalfjarðarsveit. Við erum í spennandi verkefni að stækka við okkur og erum að opna auka leikrými í færanlegu húsnæði á leikskólalóðinni og með því fjölga börnum. Í Skýjaborg er lögð áhersla á umhverfismennt, útinám, snemmtæka íhlutun í máli og læsi og sjálfsprottinn leik. Skólinn er grænfánaskóli og gildi skólans eru: Vellíðan, virðing, metnaður og samvinna.

Í Skýjaborg gefst tækifæri til að takast á við fjölbreytt og skemmtileg verkefni sem tengjast þróun leikskólastarfs, samvinnu við Heiðarskóla og fleiri stofnanir.

Heimasíða leikskólans er: https://skoli.hvalfjardarsveit.is/

Helstu verkefni og ábyrgð

Vinnur að uppeldi og menntun barnanna.

Veitir börnum sem þurfa á sérkennslu að halda sérstaka aðstoð og kennslu.

Vinnur í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn barna sem njóta sérkennslu, fagaðila og aðra ráðgjafa og situr fundi og viðtöl með þeim.

Sinnir þeim verkefnum er varða sérkennslu, uppeldi og menntun barnanna sem yfirmaður felur honum.

Starfar í sérkennsluteymi leikskólans.

Menntunar- og hæfniskröfur

·         Leyfisbréf leikskólakennara / starfsleyfi sem þroskaþjálfi  

·         Reynsla af vinnu með börnum

·         Reynsla af skipulagningu sérkennslu og þjálfunar 

·         Góð íslenskukunnátta

·         Góð samskiptahæfni

·         Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð 

*Ef ekki fæst leikskólakennari / þroskaþjálfi verður horft til menntunar og reynslu.

Fríðindi í starfi

·         35 klst. vinnuvika / 7 klst. vinnudagur. Afleysing er í húsi fyrir styttinguna.

·         Opnunartími leikskólans er 7:30-16:30. 

Utworzono ofertę pracy18. May 2026
Termin nadsyłania podań1. June 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
Lokalizacja
Innrimelur 1, 301 Akranes
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.ProfesjonalnośćPathCreated with Sketch.InicjatywaPathCreated with Sketch.Bez kryminalnej przeszłościPathCreated with Sketch.UczeniePathCreated with Sketch.AmbicjaPathCreated with Sketch.Samodzielność w pracyPathCreated with Sketch.PunktualnośćPathCreated with Sketch.Praca zespołowaPathCreated with Sketch.Opieka (dzieci/seniorzy/niepełnosprawni)PathCreated with Sketch.Cierpliwość
Zawody
Tagi zawodowe