Nesskóli
Nesskóli
Nesskóli

Þroskaþjálfi við Nesskóla

Við Nesskóla er laus staða þroskaþjálfa, um er að ræða 100% starf. Ráðið er í starfið til eins árs frá og með 1. ágúst 2026 með möguleika á framtíðar ráðningu.

Nesskóli er grunnskóli með tæplega 190 nemendur í 1.-10. bekk. Skólinn stendur í hjarta bæjarins. Leikskóli, íþróttahús og Verkmennaskóli Austurlands eru í næsta nágrenni og stutt er í sundlaugina. Nesskóli er Byrjendalæsisskóli og Erasmus-skóli. Uppeldisstefnan Uppeldi til ábyrgðar er við lýði í skólanum og kennt er í anda Leiðsagnarnáms. Í skólanum er leitast við að efla hvern einstakling í námi og starfi með fjölbreyttum kennsluaðferðum og áhersla er lögð á list- og verkgreinakennslu.

Leitað er að einstakling með mikinn metnað, sem sýnt hefur árangur í störfum sínum og leggur áherslu á vellíðan og árangur nemenda í samstarfi við kennara, foreldra og stjórnendur skólans.
Nánari upplýsingar um Nesskóla má finna á heimasíðu skólans, nesskoli.is

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinnur að áætlanagerðum, þ.m.t. skólanámskrá, bekkjaráætlunum og einstaklingsáætlunum í samráði/samstarfi við kennara, stuðningsfulltrúa, foreldra og aðra eftir því sem við á.
  • Gerir færni-, þroska- og námsmat í samráði/samstarfi við kennara, þroskaþjálfa, stuðningsfulltrúa, foreldra og aðra eftir því sem við á.
  • Skipuleggur þjálfunaraðstæður, velur/útbýr þjálfunar- og námsgögn og fylgir eftir settum markmiðum. Metur árangur og endurskoðar markmið í samstarfi við samstarfsaðila.
  • Annast þjálfun og fræðslu um fatlanir og þroskafrávik til stuðningsfulltrúa og annarra starfsmanna skólans.
  • Veitir foreldrum fatlaðra nemenda ráðgjöf og leiðbeiningar er lýtur að fötlun nemenda.
  • Veitir ráðgjöf vegna fatlaðra nemenda til annarra starfsmanna skólans.
  • Fræðir nemendur skólans um þroskafrávik og fatlanir eftir því sem við á.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf í þroskaþjálfun eða sambærileg menntun
  • Framhaldsmenntun er æskileg en ekki skilyrði.
  • Góð tungumálakunnátta, íslenska og enska.
  • Þekking á kennslu- og uppeldisfræði
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót
  • Hreint sakavottorð
  • Þekking og kunnátta á helstu upplýsingakerfi 
Utworzono ofertę pracy19. May 2026
Termin nadsyłania podań2. June 2026
Znajomość języków
AngielskiAngielski
Wymagane
Kompetencje na wysokim poziomie
islandzkiislandzki
Wymagane
Kompetencje na wysokim poziomie
Lokalizacja
Skólavegur 9, 740 Neskaupstaður
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe