Borgarbyggð
Borgarbyggð
Borgarbyggð

Deildarstjóri við Varmalandsdeild Grunnskóla Borgarfjarðar

Grunnskóli Borgarfjarðar auglýsir eftir deildarstjóra á Varmalandi fyrir skólaárið 2026-2027
Leiguhúsnæði er á staðnum.

Starf deildarstjóra er 50% starf stjórnanda og 50% starf kennara.

Grunnskóli Borgarfjarðar er þriggja starfsstöðva skóli í Borgarfirði. Starfsstöðvar skólans eru á Hvanneyri þar sem eru 26 nemendur í 1.-5. bekk, á Kleppjárnsreykjum þar sem eru 112 nemendur í 1.-10. bekk og á Varmalandi þar sem eru um 27 nemendur í 1.-4. bekk.

Stjórnendateymi Grunnskóla Borgarfjarðar samanstendur af skólastjóra, aðstoðarskólastjóra, tveimur deildarstjórum deilda og deildarstjóra stoðþjónustu. Stjórnendateymið vinnur mikið saman, skiptir með sér verkefnum og fagstjórn.

Grunnskóli Borgarfjarðar er teymiskennsluskóli þar sem kennarar vinna í teymum með samkennslu tveggja til fjögurra árganga. Skólinn vinnur eftir gildum heilsueflingar og grænfána og er leiðtogaskóli. Nánar um stefnu skólans er á heimasíðunni www.gbf.is

Helstu verkefni og ábyrgð

Dagleg stjórnun á starfsstöð sem deildarstjóri hefur umsjón með.

Vinnur í stjórnendateymi skólans að faglegu starfi skólans og skipulagi.

Tengiliður farsældar á starfsstöð sem deildarstjóri hefur umsjón með.

Sérkennsla nemenda og forfallakennsla.

Menntunar- og hæfniskröfur

Leyfisbréf kennara er skilyrði

Kennslureynsla í grunnskóla

Viðbótarmenntun í stjórnun

Reynsla af teymisvinnu og áhugi á þróunarstarfi

Framtaksemi og sjálfstæði í vinnubrögðum

Jákvæðni og lipurð í samskiptum

Reynsla af stjórnun

Góð tæknikunnátta og þekking á þeim kerfum sem nýtt eru í skólastarfinu.

Metnaður í starfi

Utworzono ofertę pracy20. May 2026
Termin nadsyłania podań1. June 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
Lokalizacja
Varmaland-skóli 134934, 311 Borgarnes
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.Pozytywne nastawieniePathCreated with Sketch.AmbicjaPathCreated with Sketch.Samodzielność w pracyPathCreated with Sketch.Organizacja
Zawody
Tagi zawodowe