
Arion banki
Starfsfólk Arion banka er kjarninn í starfsemi bankans og kappkostar bankinn að búa vel að starfsfólki sínu.
Arion banki er lifandi vinnustaður þar sem starfsumhverfið einkennist af fagmennsku, framsækni, umhyggju og tryggð
Hjá Arion banka starfa um 900 manns, þar af eru 65% konur og 35% karlar. Kynjaskipting á meðal stjórnenda bankans er fremur jöfn og sama gildir um aldursdreifingu innan bankans en meðalaldur starfsfólks Arion banka er 42 ár.
Fjölmargt starfsfólk hefur sýnt bankanum og forverum hans mikla tryggð og eru dæmi um að starfsfólk sé með meira en 40 ára starfsaldur. Meðal starfsaldur hjá Arion banka er tíu ár.

Við leitum að þjónusturáðgjafa í útibú okkar á Akureyri
Við leitum að jákvæðum og þjónustulunduðum einstaklingi til starfa í útibúi Arion banka á Akureyri. Leitað er eftir aðila sem hefur ánægju af því að veita framúrskarandi bankaþjónustu og er tilbúinn að koma inn í árangursdrifið vinnuumhverfi.
Um er að ræða tímabundið starf til eins árs.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu og ráðgjöf í gegnum síma, tölvupóst og í útibúi
- Móttaka viðskiptavina
- Kennsla og kynning á stafrænni þjónustu bankans
- Að framfylgja þjónustu- og sölustefnu bankans hverju sinni
- Ýmis önnur verkefni í samráði við yfirmann
Menntunar- og hæfniskröfur
- Framúrskarandi þjónustulund og samskiptahæfni
- Sveigjanleiki og gott viðmót
- Frumkvæði, söludrifni og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Menntun og/eða starfsreynsla sem nýtist í starfið
- Góð tölvukunnátta og áhugi á stafrænum lausnum
- Góð íslensku- og enskukunnátta
Advertisement published17. November 2026
Application deadline27. November 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Gleráreyrar 1, 600 Akureyri
Type of work
Skills
ProactiveHuman relationsIndependenceSalesCustomer service
Professions
Job Tags
Other jobs (3)
Similar jobs (12)

Talent Acquisition Partner
atNorth

Þjónustufulltrúi Noona Iceland
Noona Iceland

Þjónusturáðgjafi - Askja og Dekkjahöllin í Reykjanesbæ
Bílaumboðið Askja

Þjónustufulltrúi
Samtökin '78

Verkefnastýri viðburða og félagsstarfs
Samtökin '78

Sumarstörf í þjónustu hjá Icelandair á Keflavíkurflugvelli 2027
Icelandair

Senior Executive Assistant (Anticipatory)
Sendiráð Kanada

Móttökuritari - Heimahjúkrun HH
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Starfsmaður á skrifstofu - framtíðarstarf
Epal hf.

Framkvæmdastjóri Badmintonsambands Íslands
Badmintonsamband Íslands

Það á að vera gaman í vinnunni...
Takk ehf

Starf hjá þjónustuveri
Landspítali