
Arion banki
Starfsfólk Arion banka er kjarninn í starfsemi bankans og kappkostar bankinn að búa vel að starfsfólki sínu.
Arion banki er lifandi vinnustaður þar sem starfsumhverfið einkennist af fagmennsku, framsækni, umhyggju og tryggð
Hjá Arion banka starfa um 900 manns, þar af eru 65% konur og 35% karlar. Kynjaskipting á meðal stjórnenda bankans er fremur jöfn og sama gildir um aldursdreifingu innan bankans en meðalaldur starfsfólks Arion banka er 42 ár.
Fjölmargt starfsfólk hefur sýnt bankanum og forverum hans mikla tryggð og eru dæmi um að starfsfólk sé með meira en 40 ára starfsaldur. Meðal starfsaldur hjá Arion banka er tíu ár.

Sérfræðingur í rekstrar- og sjálfbærniáhættu
Arion banki leitar að lausnamiðuðum sérfræðingi til starfa í Rekstrar- og sjálfbærniáhættu innan Áhættustýringar.
Teymið þróar aðferðir og umgjörð til að greina, meta og hafa eftirlit með rekstrar- og sjálfbærniáhættu og vinnur náið með öðrum einingum bankans að því að styrkja áhættustýringu og innra eftirlit. Við leggjum áherslu á gagnadrifna og framsýna áhættustýringu, þar sem gögn, sjálfvirkni og ný tækni eru nýtt til að greina þróun áhættu, finna mynstur og styðja við betri ákvarðanatöku.
Við leitum að einstaklingi með ríka greiningarhæfni, áhuga á tækni og nýtingu gagna og vilja til að takast á við fjölbreytt viðfangsefni.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Greining á fjölbreyttri starfsemi bankans
- Þróun mælikvarða, lykiláhættuvísa og annarra greininga sem styðja við virka áhættustýringu
- Áhættumöt, úttektir, mat á virkni stýringa og greining frávika
- Þátttaka í þróun og hagnýtingu kerfa og tæknilausna sem styðja við áhættustýringu, þar á meðal sjálfvirkni og gervigreind
- Sviðsmyndagreiningar og önnur greiningarvinna á rekstrar- og sjálfbærniáhættu
- Skýrslugjöf og miðlun niðurstaðna til stjórnenda og annarra hagaðila
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. á sviði viðskipta, verkfræði, tölvunarfræði, hagfræði, tölfræði, eða sambærilegra greina
- Góð greiningarhæfni og hæfni til að vinna með og túlka gögn
- Áhugi á því að nýta tækni, sjálfvirkni og gervigreind til að bæta verklag og greiningar
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð, frumkvæði og gagnrýnin hugsun
- Góð samskiptafærni og hæfni til að miðla flóknum niðurstöðum á skýran og einfaldan hátt
- Þekking á ferlum, gæðamálum og úttektum er kostur
- Þekking á áhættustýringu, ferlum, innra eftirliti og starfsemi fjármálafyrirtækja er kostur
- Góð færni í íslensku og ensku í ræðu og riti
Advertisement published6. November 2026
Application deadline20. November 2026
Language skills
islandzkiRequired
AngielskiRequired
Location
Borgartún 19, 105 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags
Other jobs (4)
Similar jobs (12)

Tæknilegur bókari
Sessor

Sérfræðingur í áhættustýringu – efnahagsáhætta og líkön
Arion banki

Verkefnastjóri við borframkvæmdir
Ræktunarsamband Flóa og Skeiða

Hagfræðingur
VR

Svæðisstjóri fyrirtækja á Suðurlandi
Arion banki

Framkvæmdarstjóri - öflugt félag á byggingamarkaði
Fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu

Viltu taka þátt í að móta framtíð aflstöðva okkar? Verkefnastjóri í endurbótadeild
Landsvirkjun

Sérfræðingur í innkaupum
Landsvirkjun

Director Finance, Fish
JBT Marel

Launafulltrúi hjá Akraneskaupstað
Akraneskaupstaður

Tæknimaður/verkefnastjóri
Loftorka Reykjavík ehf.

Sérfræðingur í fjármálum
Abler - Sport Matters