Arion banki
Arion banki
Arion banki

Sérfræðingur í áhættustýringu – efnahagsáhætta og líkön

Við leitum að öflugum sérfræðingi í efnahagsáhættu og líkön innan áhættustýringar. Helsta hlutverk deildarinnar er að greina og hafa yfirsýn yfir fjárhagslega áhættuþætti í starfsemi bankans. Verkefnin eru fjölbreytt og fela meðal annars í sér reglubundna skýrslugjöf til stjórnar og eftirlitsaðila, sjálfvirknivæðingu á gagnaflæði og gagnadrifin greiningarverkefni.

Við viljum fá til liðs við okkur nákvæman og metnaðarfullan einstakling sem hefur áhuga á gagnagrúski og leitar stöðugt að einföldunum og leiðum til að nýta sjálfvirkni.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Reglubundin upplýsingagjöf innan bankans og til eftirlitsaðila 
  • Þróun á kerfum til að auka sjálfvirkni í gagnaflæði og tryggja samræmi í gögnum um fjárhagslega áhættuþætti 
  • Greiningar á fjárhagslegum áhættuþáttum sem grundvallast á gagnavinnslu og tölfræði 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun í verkfræði, stærðfræði eða tengdum greinum 
  • Greiningarhæfni, nákvæmni og gott vald á úrvinnslu og framsetningu upplýsinga 
  • Þekking á SQL fyrirspurnamálinu og forritunarmálum, svo sem Python eða R, er kostur 
  • Þekking og reynsla af fjármálastarfsemi er kostur 
  • Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og gagnrýnin hugsun 
  • Góð færni í íslensku og ensku í ræðu og riti 
Advertisement published6. November 2026
Application deadline20. November 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Borgartún 19, 105 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags