Arion banki
Arion banki
Arion banki

Svæðisstjóri fyrirtækja á Suðurlandi

Fyrirtækja- og fjárfestingarbankasvið Arion banka leitar að öflugum svæðisstjóra fyrirtækja á Suðurlandi. Svæðisstjóri ber ábyrgð á daglegri stjórnun fyrirtækjateymis í útibúi Arion á Selfossi og leiðir sókn og þjónustu við vaxandi fyrirtækjabók samstæðunnar á Suðurlandi.

Svæðisstjóri heyrir undir forstöðumann fyrirtækja og fyrirtækjatrygginga, sem leiðir banka- og tryggingaþjónustu við smærri og meðalstór fyrirtæki um land allt. Viðkomandi er hluti af reyndu stjórnendateymi sem stýrir teymum með afmörkuð hlutverk í fyrirtækjaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni. Sviðið veitir fyrirtækjum, stofnunum og sveitarfélögum alhliða fjármála- og tryggingaþjónustu og stýrir fjölbreyttum fjármögnunarverkefnum. Áhersla er á náið samstarf, faglega ráðgjöf og framúrskarandi þjónustu sem miðast við þarfir hvers fyrirtækis.

Starfið felur í sér virka markaðssókn, uppbyggingu öflugra viðskiptasambanda á Suðurlandi og náið samstarf við Vörð tryggingar um sölu og þjónustu fyrirtækjatrygginga. Þjónusta sviðsins nær meðal annars til fjölbreyttra fjármögnunarlausna og almennrar bankaþjónustu fyrir fyrirtæki.

Leitað er að hvetjandi, framsýnum og söludrifnum stjórnanda með leiðtogahæfileika, góð atvinnulífstengsl og framúrskarandi samskipta- og þjónustuhæfni. Viðkomandi þarf að hafa brennandi áhuga á að efla viðskiptasambönd og skapa ný tækifæri. Góð þekking á íslensku viðskiptalífi er mikill kostur. Starfinu geta fylgt ferðalög innanlands og því fylgir þátttaka í atvinnulífsviðburðum, stundum utan hefðbundins vinnutíma.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Dagleg stjórnun, hvatning og starfsþróun starfsfólks teymis ásamt samhæfingu verkefna í fyrirtækjamálum á Suðurlandi.
  • Eftirfylgni með sóknar- og söluáætlunum, krosssölutækifærum og þjónustumarkmiðum í samstarfi við forstöðumann og meðstjórnendur.
  • Umsjón með og ábyrgð á núverandi viðskiptasamböndum og ánægju viðskiptavina.
  • Öflun nýrra viðskiptatækifæra, efling viðskiptasambanda við núverandi viðskiptavini og markviss sókn að nýrra viðskiptavina í fyrirtækja- og tryggingaþjónustu.
  • Þróun og eftirfylgni með gæðum í útlánastarfsemi til fyrirtækja í samstarfi við forstöðumann.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Framúrskarandi söluhæfni, samskiptahæfni og leiðtogahæfileikar.
  • Metnaður, drifkraftur og sjálfstæði í starfi ásamt vilja til að ná stöðugt betri árangri.
  • Starfsreynsla á sviði útlána eða í sölu- og þjónustustörfum er æskileg.
  • Þekking eða hæfni til að greina tækifæri í vöruþróun er kostur.
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Framhaldsmenntun og reynsla af stjórnun eru kostir.
Advertisement published6. November 2026
Application deadline20. November 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Austurvegur 10, 800 Selfoss
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.DrivePathCreated with Sketch.LeadershipPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.SalesPathCreated with Sketch.Business relations
Professions
Job Tags