

Hagfræðingur
VR leitar að hagfræðingi sem hefur áhuga á að ganga til liðs við félagið. Starfið hentar einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á efnahagsmálum, vinnumarkaði og samfélagslegum álitaefnum og vill nýta hagfræðilega þekkingu, gögn og greiningar til að styðja við hagsmunagæslu félagsins. Starfið heyrir undir framkvæmdastjóra VR.
Um starfið:
Hagfræðingur VR sinnir fjölbreyttum greiningum á efnahags- og vinnumarkaðsmálum og tekur þátt í að móta og styrkja faglegan grundvöll fyrir hagsmunagæslu félagsins. Í starfinu felast meðal annars greiningar á þróun launa, verðlags, kaupmáttar, vaxta, framleiðni og annarra þátta sem hafa áhrif á stöðu launafólks.
Mikilvægur hluti starfsins er að finna og nýta fyrirliggjandi gögn með markvissum hætti. Viðkomandi þarf því að hafa góða þekkingu á gagnagrunnum, geta sótt og unnið úr gögnum úr ólíkum heimildum og nýtt þau til að varpa ljósi á þróun og samhengi í efnahags- og vinnumarkaðsmálum.
Starfið felur jafnframt í sér að fylgjast náið með þróun þjóðarbúsins og vinnumarkaðarins og miðla niðurstöðum greininga á skýran og aðgengilegan hátt. Hagfræðingur tekur þátt í undirbúningi fyrir kjarasamninga og öðrum verkefnum þar sem greiningar skipta máli.
Helstu verkefni:
- Hagfræðilegar og tölfræðilegar greiningar.
- Greining á þróun vinnumarkaðar, launa, verðlags og kaupmáttar.
- Vöktun og greining á þjóðhagslegri þróun.
- Öflun og úrvinnsla gagna úr gagnagrunnum og öðrum fyrirliggjandi heimildum.
- Samkeyrsla, greining og framsetning gagna.
- Gerð sviðsmynda, spáa og annarra greininga eftir þörfum.
- Undirbúningur greinargerða, minnisblaða og kynningarefnis.
- Faglegur stuðningur við stefnumótun, hagsmunagæslu og kjarasamningsgerð.
- Miðlun hagfræðilegra upplýsinga til stjórnenda, starfsfólks, félagsfólks og annarra hagaðila.
Menntunar og hæfniskröfur:
Við leitum að einstaklingi með háskólamenntun í hagfræði eða sambærilega menntun. Framhaldsmenntun er kostur.
Viðkomandi þarf að hafa mjög góða greiningarhæfni, góða tölfræðilega og megindlega færni og áhuga á þjóðhagfræði og vinnumarkaðsmálum.
Við leggjum jafnframt áherslu á:
- Þekkingu og reynslu af vinnu með gagnagrunna og stærri gagnasöfn.
- Hæfni til að finna, sækja, tengja saman og nýta fyrirliggjandi gögn úr ólíkum heimildum.
- Færni í tölfræðilegri úrvinnslu og framsetningu gagna.
- Reynsla af viðeigandi greiningar- og gagnavinnslutólum er kostur.
- Sjálfstæði, frumkvæði og skipulögð vinnubrögð.
- Hæfni til að draga fram það sem skiptir máli úr flóknum gögnum og miðla niðurstöðum á skýran og aðgengilegan hátt.
- Kostur að hafa unnið með tölfræðiforritið R.
- Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.
- Góða samstarfshæfni og áhuga á samfélags- og vinnumarkaðsmálum.
Við bjóðum
Fjölbreytt og krefjandi starf þar sem tækifæri gefst til að vinna að verkefnum sem hafa beina þýðingu fyrir félagsfólk og þróun íslensks vinnumarkaðar. Starfið býður upp á töluvert sjálfstæði, fjölbreytt greiningarverkefni og tækifæri til að hafa áhrif á faglega nálgun og stefnumótun félagsins.
Umsóknarfrestur er til og með 16. nóvember 2026.
Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna.
Umsækjendur skulu senda inn ferilskrá ásamt kynningarbréfi á íslensku. Þar skal gera grein fyrir þeirri þekkingu, reynslu og hæfni umsækjanda sem nýtist til að sinna starfinu í samræmi við hæfniskröfurnar í auglýsingunni.
Umsjón með starfinu hafa Auður Bjarnadóttir ([email protected]) og Hilmar Garðar Hjaltason ([email protected]).
Icelandic
English




